NBA í nótt: Chicaco nálgast Boston á toppnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. mars 2011 11:00 Doc Rivers, þjálfari Boston. Mynd/AP
Stuttu eftir að Chicago henti Miami Heat úr öðru sæti Austurdeildarinnar er nú liðið aðeins hársbreidd frá því að ná toppsætinu af Boston Celtics. Chicago vann sinn fimmta leik í röð í nótt er liðið lagði Atlanta á heimavelli, 94-76. Á sama tíma tapaði Boston sínum öðrum leik í röð, í þetta sinn fyrir Philadelphia á útivelli, 89-86. Bæði lið hafa unnið 46 leiki en Boston á leik til góða og er því með örlítið betra sigurhlutfall eins og staðan í deildinni er í dag. Jafnræði var með Boston og Philadelphia í fjórða leikhluta og þau skiptust á að hafa forystu. En mestu munaði um að Boston skoraði aðeins þrjú stig - öll af vítalínunni - á síðustu sex mínútu leiksins fyrir utan sniðskot Kevin Garnett á lokasekúndunum. Þá hafði Philadelphia náð fimm stiga forystu í leiknum og kom sú karfa því of seint. Elton Brand og Spencer Hawes skoruðu fjórtán stig hvor fyrir Philadelphia auk þess sem að Hawes tók tíu fráköst. Hjá Boston var Nenad Krstic stigahæstur með sextán stig en hann tók einnig fimmtán fráköst. Þríeykið öfluga hjá Boston náði sér ekki á strik í leiknum - Garnett var með fjórtán stig, Paul Pierce ellefu og Ray Allen fimm. Í sigri Chicago á Atlanta skoraði Derrick Rose 34 stig og átti enn einn stórleikinn fyrir hið kröftuga lið Bulls. San Antonio er enn með besta árangur allra liða í NBA-deildinni en liðið vann í nótt sinn 53. leik á tímabilinu er liðið lagði Sacramento, 108-103. Liðið er með nokkuð þægilega forystu á Dallas og LA Lakers á toppi Vesturdeildarinnar og eina liðið þar sem er þegar búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Tony Parker skoraði 27 stig fyrir liðið í nótt og Manu Ginobili var með 24. Toronto vann Indiana, 108-98. Leandro Barbosa skoraði 29 stig fyrir Toronto. Charlotte vann Portland, 97-92. Stephen Jackson skoraði 29 stig fyrir Charlotte, þar af átján í fjórða leikhluta. Minnesota vann Utah, 122-101. Kevin Love skoraði 24 stig og tók tólf fráköst fyrir Minnesota. Þar með hefur hann náð 53 tvöföldum tvennum í röð og heldur því áfram að bæta metið sem hann setti fyrr í vikunni. Oklahoma City vann Detroit, 104-94. Kevin Durant skoraði 24 stig og James Harden 22. Golden State vann Orlando, 123-120, í framlengdum leik. Monta Ellis var með 39 stig og ellefu stoðsendingar fyrir Golden State og Dorell Wright 32 stig. Orlando náði mest 21 stigs forystu í leiknum en það dugði ekki til.
Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Fleiri fréttir Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ Sjá meira