Var varaður við afleiðingum synjunar 7. janúar 2010 04:00 Ólafur Ragnar Grímsson fékk gögn sem vöruðu við alvarlegum efnahagslegum afleiðingum þess að synja lögunum staðfestingar. Hann synjaði engu síður.fréttablaðið/stefán
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var varaður við því að synjun laga um ríkisábyrgð vegna Icesave, gæti stórlaskað stöðu Íslands í alþjóðasamstarfi og aukið hættu á greiðslufalli. Þetta kom fram í bréfi frá sérfræðingum í Stjórnarráði Íslands, sem forsetinn fékk í hendur á mánudag. Þar er varað við alvarlegum efnahagslegum afleiðingum. Í bréfinu segir að verði lögin felld í þjóðaratkvæðagreiðslu gæti skapast alvarlegt ástand. Bretar og Hollendingar myndu neyta utanríkispólitísks aflsmunar á vettvangi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og EES. Það mundi torvelda endurfjármögnun íslenska ríkisins, sveitarfélaga og orkufyrirtækja. Þá er minnt á að núverandi gjaldeyrishöft séu í andstöðu við grunnreglur EES og háð samþykki annarra samningsaðila. Sérfræðingarnir telja að ef lögin verði felld séu allar líkur á að fyrri samningar falli einnig úr gildi. Þetta kemur einnig fram í minnispunktum Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra, sem hann fór yfir með forsetanum. Þar segir að ríkislögmaður geti ekki vottað hvernig málið standi verði lögin felld. Í bréfi sérfræðinganna er einnig varað við því að verði lögin felld fái Bretar og Hollendingar meginþorra allra úthlutana úr þrotabúi Landsbankans og fyrstu sjö árin alveg það sama og þeir hefðu fengið samkvæmt samningnum. Þá er ítrekað að samstarfsáætlun AGS og Íslands yrði óvirk og henni jafnvel rift. Matsfyrirtækin myndu einnig lækka landið niður í ruslflokk, nokkuð sem þegar hefur gerst. Í minnisblaði Steingríms er einnig sagt að trúverðugleiki íslenskra stjórnvalda sé í húfi, núverandi ríkisstjórn, að minnsta kosti fjármálaráðherra, yrði í afar vandræðalegri stöðu gagnvart viðsemjendum. Þá hrósar Steingrímur þjóðinni fyrir yfirvegun, en undir kraumi mikið og ástandið í samfélaginu sé brothætt og aukið atvinnuleysi á útmánuðum gæti gert ástandið verra. Friðrik Már Baldursson, prófessor í viðskiptafræði við HR, ræddi við forsetann í síma í aðdraganda ákvörðunar hans. Í samtali við Fréttablaðið á þriðjudag, sagði Friðrik óttast að synjun forsetans hleypti nauðsynlegri endurfjármögnun í uppnám. Greiðslukúfur væri fram undan fyrir landið, árin 2011 og 2012, og fjármögnun yrði því að vera skýr. „Þetta er mikil áhætta sem við erum að taka.“ kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Innlent Bílstjórinn þrettán ára Innlent Lítur svo á að hann njóti ekki trausts og hefur beðist lausnar Innlent Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Innlent Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg Innlent Tilkynnt um dróna yfir Keflavíkurflugvelli Innlent Orrustuþotur yfir Borgundarhólmi og drónar trufla flug í Noregi Erlent Fyrrverandi landgönguliði drap að minnsta kosti fjóra í Michigan Erlent „Óvænt og líka mjög leiðinlegt“ Innlent Banaslys á Skagavegi 2024: Drukknaði eftir að hafa misst stjórn í beygju Innlent Fleiri fréttir Fall Play frá öllum hliðum Tilkynnt um dróna yfir Keflavíkurflugvelli Þriggja ára fangelsi: Tók ekki mark á lygilegri frásögn Neyðast til að millilenda, tapaður peningur og rándýr flug heim Lítur svo á að hann njóti ekki trausts og hefur beðist lausnar Banaslys á Skagavegi 2024: Drukknaði eftir að hafa misst stjórn í beygju Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Bein útsending: Lýðheilsuvísar 2025 kynntir Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg „Óvænt og líka mjög leiðinlegt“ Play hættir að fljúga, hundruð missa vinnuna og strandaglópar í Leifsstöð Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Fara yfir stöðuna vegna Play og skipuleggja sig Bílstjórinn þrettán ára Vísað burtu af hóteli og svo handtekinn í sameign 29 prósent heimila skipuð einstæðingum: „Meðvituð ákvörðun til að njóta frelsis“ Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Allt niður í þriggja mánaða fiðluleikara „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ „Ákveðinn miski“ að geta ekki treyst vatninu Flúði próflaus undan lögreglu með einum of marga farþega þegar bíllinn valt Umfangsmiklar árásir og símengað neysluvatn Báturinn áður sokkið í sömu höfn og án skýringar Drukkinn ökumaður keyrði á þrjá bíla og reyndi að stinga af Um 200 nemendur eru í lögreglunámi á Akureyri Skora á Snorra að gefa kost á sér Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Reiknað með afskiptum af öllum samkomum Vítisengla Lögreglan með málið til rannsóknar Áframhaldandi aðgerðir gegn Vítisenglum Sjá meira