Erlent

Björguðu sæskjaldbökum frá slátrun

Björgunarstörf Skjaldbökurnar eru sjaldgæfar grænar sæskjaldbökur. Fimm af sex tegundum sæskjaldbaka í heiminum eiga heimkynni við Indónesíu. 
Nordicphotos/AFP
Björgunarstörf Skjaldbökurnar eru sjaldgæfar grænar sæskjaldbökur. Fimm af sex tegundum sæskjaldbaka í heiminum eiga heimkynni við Indónesíu. Nordicphotos/AFP

71 sæskjaldböku var bjargað frá því að enda á borðum matgæðinga á eynni Balí í Indónesíu. Lögreglan þar í landi handtók kaupmann þegar grænar risaskjaldbökur fundust í vöruhúsi hans í Denpasar-borg. Maðurinn sagðist hafa keypt skjaldbökurnar af sjómönnum sem hefðu veitt þær undan Sulawesi-eyju. Skjaldbökurnar voru að meðaltali metri að stærð.

Skjaldbökukjöt þykir mesta góðgæti í Balí en verslun með skjaldbökur hefur verið bönnuð vegna þess að þær eru í útrýmingarhættu. - sbt



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×