Lífið

Britney sögð óhæf móðir

Fyrrum lífvörður Britney Spears sakar hana um að hafa hýtt annan son sinn með belti.
Fyrrum lífvörður Britney Spears sakar hana um að hafa hýtt annan son sinn með belti.

Lífvörðurinn Fernando Flores, sem kærði söngkonuna Britney Spears fyrir kynferðislegt áreiti á vinnustað, hefur nú einnig sakað hana um slæma meðferð á sonum sínum tveimur, Sean Preston og Jayden James.

Flores segir söngkonuna í miklu andlegu ójafnvægi og að hún hafi eitt sinn hýtt Sean Preston með belti. „Britney vill vera góð móðir en Flores telur að hún sé ekki í nægilega góðu ástandi til að taka ábyrgð á drengjunum. Flores sagði að söngkonan hafi eitt sinn komið æðandi í áttina að honum og heimtað að hann léti hana fá beltið sem hann bar um sig. Hann lét hana fá það en elti hana aftur inn í húsið þar sem hann sagðist hafa séð Britney hýða Sean Preston með beltinu fyrir að hafa óhlýðnast sér," var haft eftir ónefndum heimildarmanni. Samkvæmt sama heimildarmanni eiga barnaverndaryfirvöld að vera að rannsaka málið.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×