Innlent

Frambjóðendur kynntir á kosning.is

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur opnað vefsvæði með kynningu á frambjóðendum til stjórnlagaþings á vefnum kosning.is. Þar er líka að finna hjálparkjörseðil þar sem kjósendur geta raðað þeim frambjóðendum sem þeir hafa áhuga á að kjósa, prentað seðilinn út og tekið með sér á kjörstað.

Einnig er unnið að gerð prentaðs kynningarefnis sem sent verður á hvert heimili í landinu þriðjudaginn 16. nóvember næstkomandi og kynningarkjörseðils sem sendur verður öllum kjósendum sama dag, samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu.

Frambjóðendur sjálfir eru höfundar þess kynningartexta sem birtur er á vefnum kosning.is. Kynningarefnið hefur verið yfirlesið og lagfært með tilliti til málfars og stafsetningar. Á sérsíðu um hvern frambjóðanda kemur fram í samandregnu máli af hverju viðkomandi býður sig fram, birtar eru upplýsingar um menntun, starfsreynslu, aldur, netfang og vefsíður sem vísa á frekara kynningarefni, hafi frambjóðendur kosið að láta það fylgja framboði sínu. Þá kemur fram fjögurra tölustafa auðkennistala sem hverjum frambjóðanda var úthlutað af landskjörstjórn og færa þarf á kjörseðil á kjördag í stað nafns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×