Lífið

Hudson opnar sig um myrta móður

Hudson segir atvikið vera í móðu og allt hafi verið svo óraunverulegt.
Hudson segir atvikið vera í móðu og allt hafi verið svo óraunverulegt.

Jennifer Hudson hefur nú í fyrsta sinn opnað sig um hið hræðilega atvik sem átti sér stað árið 2008, þegar móðir hennar, eldri bróðir og sjö ára frændi hennar fundust myrt.

„Þetta er allt í móðu, þetta var svo óraunverulegt," segir leikkonan. „Í raun var eins og ég stæði fyrir utan sjálfa mig."

Söngkonan segist hafa eytt um tveimur vikum inni í herbergi og fjölskylda og vinir komið til hennar. Hún bað til Guðs þegar hún vaknaði á morgnana og áður en hún lagðist niður á kvöldin.

Hudson kom fyrst fram á Grammy-verðlaunaafhendingunni árið 2009 eftir atvikið. Þar söng hún lagið You Pulled Me Through og segir hún það hafa gefið henni styrk.

„Ég var að hugsa um fjölskyldu mína þegar ég söng þetta lag. Ég gat heyrt í bróður mínum í hugsunum mínum þar sem hann sagði: „Jennifer, þú þarft að negla þetta! þú þarft að fara upp á svið og gera þetta." Ég vissi að hann yrði vonsvikinn ef ég myndi ekki gera mitt allra besta," segir söngkonan. - ls






Tengdar fréttir

Leita enn að frænda Hudson

Lögregluyfirvöld í Chicago herða nú leit sína að sjö ára gömlum frænda Óskarsverðlaunahafans Jennifer Hudson.

Fyrirgefur morðingja móður sinnar

Söngkonan Jennifer Hudson segist fyrirgefa William Balfour sem myrti móður hennar, bróðir og frænda. Morðin áttu sér stað á heimili þeirra á heimili móður hennar í október á síðasta ári.

Móðir og bróðir Jennifer Hudson létust í skotárás

Móðir og bróðir bandarísku söngkonunnar og óskarsverðlaunahafans Jennifer Hudson fundust látin á heimili sínu eftir skotárás í gær. Lögreglan leitar að sjö ára frænda Hudson sem enn hefur ekki fundist. Þegar hefur einn verið handtekinn í tengslum við skotárásina. Lögreglan telur að um heimilisofbeldi hafi verið að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×