Innlent

Húsleitir hjá Jóni Ásgeiri, Lárusi og Pálma

Þorbjörn Þórðarson skrifar

Húsleitir voru framkvæmdar á skrifstofu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á 101 Hóteli, skrifstofu Pálma Haraldssonar og heimili Lárusar Welding í gríðarlega umfangsmikilli rannsókn sérstaks saksóknara í dag. Rannsóknin tengist lánveitingum Glitnis og nemur fjárhæð viðskiptanna um sjötíu milljörðum króna.

Aðgerðir sérstaks saksóknara voru mjög umfangsmiklar, en tíu húsleitir voru framkvæmdar samtímis í morgun. Sextán húsleitir voru framkvæmdar samtals að undangengnum dómsúrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur, en alls tóku um 70 manns þátt í aðgerðunum frá sjö embættum.

Jón Ásgeir Jóhannesson. Húsleit var gerð á skrifstofu hans á 101 Hóteli.
Auk starfsmanna sérstaks saksóknara tóku þátt lögreglumenn frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sérsveit og efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra, lögreglustjóranum á Akureyri, lögreglustjóranum á Hvolsvelli auk starfsmanna frá Fjármálaeftirlitinu. „Um er að ræða all nokkur stór og flókin mál, þannig að þetta var töluvert mikil aðgerð sem þurfti langan undirbúning," segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.

Húsleitir voru m.a framkvæmdar á heimili Lárusar Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, skrifstofu Pálma Haraldssonar og skrifstofu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á 101 Hóteli, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Grunur um markaðsmisnotkun, umboðssvik o.fl.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari

Aðgerðirnar í dag varða fimm sundurgreind mál sem eru til rannsóknar. Í fyrsta lagi er um að ræða mál vegna 20 milljarða króna lánveitingar Glitnis til Stím ehf. vegna viðskipta með hlutabréf í Glitni og FL Group, en hinn 14. nóvember 2007 var tilkynnt um viðskipti með bréf í FL Group og Glitni fyrir samtals 24,8 milljarða króna. Bréfin sem Stím keypti voru í eigu Glitnis sjálfs, og lánaði Glitnir um 20 milljarða króna til kaupanna. Grunur leikur á að um sýndarviðskipti hafi verið að ræða til að fegra stöðu Glitnis og þar með markaðsmisnotkun. Stjórnarformaður Stím var Jakob Valgeir Flosason, útgerðarmaður á Bolungarvík. Stærsti hluthafi félagsins var Glitnir.

Grunur um markaðsmisnotkun, umboðssvik o.fl.

Í öðru lagi er um að ræða sex milljarða króna lán Glitnis til félagsins FS-38 ehf. til kaupa á fyrirtækinu Aurum Holding Ltd. af Fons hf. á yfirverði en grunur leikur á að lánasamningurinn hafi verið settur á svið til ná tveimur milljörðum króna út úr Glitni umfram vanskil Pálma Haraldssonar við bankann.

Þessi lánveiting varð tilefni frægs tölvupósts Einars Arnar Ólafssonar, þáverandi framkvæmdastjóra hjá Glitni til Lárusar Welding, þáverandi bankastjóra þar sem hann var að hneykslast á samningnum: „Verð að viðurkenna að ég skil ekki af hverju við lanum ekki bara palma 2.ma.kr. til að koma fyrir á cayman, aður en hann fer a hausinn," sagði Einar Örn í tölvupóstinum sem er meðal gagna í skaðabótamáli sem slitastjórn Glitnis hefur höfðað vegna viðskiptanna. Grunur leikur á að um umboðssvik hafi verið að ræða samkvæmt almennum hegningarlögum.

Þriðja málið sem er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara er vegna lánveitinga Glitnis vegna kaupa á danska fasteignafélaginu Keops. Um er að ræða 7 milljarða króna lán til Stoða hf., 4,8 milljarða króna lán til Baugs og 5 milljarða króan lán til 101 Capital ehf.

Fjórða málið er vegna kaupa sjóðsins GLB FX, sem var í vörslu Glitnis, á skuldabréfi af Saga Capital en bréfið var útgefið af Stím ehf. Fimmta og síðasta málið er vegna kaupa Glitnis á hlutabréfum í Tryggingamiðstöðinni.



Upphæðir hlaupa á sjötíu milljörðum króna


Samtals hlaupa upphæðir vegna þessara viðskipta á um sjötíu milljörðum króna. Öll þessi mál, fyrir utan mál fagfjárfestasjóðsins, eru rakin í stefnu slitastjórnar Glitnis vegna einkamáls sem þrotabúið höfðaði í New York gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og viðskiptafélögum hans.

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir að það megi til sanns vegar færa að um sömu málsatvik séu að ræða í mörgum tilvikum. „Það sem er grunnurinn á bak við þessar rannsóknir eru annars vegar kærur frá Fjármálaeftirlitinu og gögn frá skilanefnd Glitnis banka. Að sumu leyti er um að ræða gögn sem varða sömu málin, en þetta eru þau sakarefni sem eru til rannsóknar," segir Ólafur.

Alls voru níu yfirheyrðir í dag í tengslum við rannsóknina. Þeirra á meðal eru Bjarni Jóhannsson og Guðný Sigurðardóttir sem voru framkvæmdastjórar hjá Glitni banka og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Fjárfestingarbanka. Þorvaldur Lúðvík segist ekki vera til rannsóknar vegna gruns um refsiverða háttsemi og sé aðeins vitni málinu. Yfirheyrslur munu halda áfram í kvöld og ekki er útilokað að fleiri verði yfirheyrðir.


Tengdar fréttir

Þorvaldur Lúðvík yfirheyrður

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga fjárfestingarbanka, er einn þeirra sem hefur verið yfirheyrður í morgun í Glitnismálinu, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Handtökurnar tengjast Stím málinu

Sérstakur saksóknari hefur handtekið menn í tengslum við rannsóknina á Glitnismálinu, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Sérstakur rannsakar lán til Baugs, FS-38 og Landic auk Stím

Í tengslum við rannsóknir embættis sérstaks saksóknara á lánveitingum Glitnis og viðskiptum með hlutabréf fóru fram húsleitir á ýmsum stöðum í dag á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Nánar tiltekið eru til rannsóknar eftirgreind mál:

Saga Fjárfestingarbanki: Rannsóknin tengist ekki bankanum

Saga Fjárfestingarbanki hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna rannsóknar Sérstaks saksóknara, en húsleit var gerð á skrifstofum bankans á Akureyri og í Reykjavík. Í yfirlýsingunni segir að bankinn hafi frá upphafi liðsinnt saksóknara og hans fólki við rannsóknina og að Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari hafi staðfest að rannsóknin beinist ekki að Saga Fjárfestingarbanka.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×