Þrisvar verið beint leysigeisla á flugvélar á þessu ári 12. nóvember 2010 18:37
Afar auðvelt er að nálgast öfluga leysibenda hér á landi en slíkur búnaður getur valdið varanlegum augnskaða og jafnvel kveikt í hlutum úr fjarlægð. Þrisvar hefur leisergeisla verið beint að stjórnklefa flugvélar á vegum Icelandair á þessu ári en slíkt getur valdið mikilli hættu. Þá hlaut kennari augnskaða fyrr í þessari viku þegar nemandi beindi slíkum geisla að honum. Mikil hætta skapaðist þegar leisergeisla var beint að stjórnklefa Fokker flugvélar frá Flugfélagi Íslands þegar hún var í aðflugi að Akureyrarflugvelli á þriðjudag. Fjórtán ára piltur játaði síðan verknaðinn. Geislarnir koma úr svokölluðum leysibendum en þeim er skipt í fjóra styrkleikaflokka. Fyrstu tveir eru ekki hættulegir og almennt notaðir við kennslu hér á landi. „Leysibendar í flokki þrjú geta skaðað augu. Með leysibenda í flokki fjögur getur þú kveikt í hlutum úr fjarlægð," segir Þorgeir Sigurðsson fagstjóri hjá Geislavörnum ríkisins. Auðvelt er að nálgast öfluga leysibenda í verslunum hér á landi og þá er einnig auðvelt að kaupa þá á netinu. Geislavarnastofnanir í Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð hafa sent formlegt bréf til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þar sem hvatt er til innflutningstakmarkana og banns á almennri notkun öflugra leysibenda. „Við viljum helst ekki að þetta verði þannig vandamál að einhverjir verði blindir eða einhverjir blindist sem stjórna farartækjum þannig að þeir valdi slysum. Þetta gæti orðið mjög stórt vandamál," segir Þorgeir. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair hefur það þrisvar gerst á þessu ári að leisergeisla hafi verið beint að stjórnklefa flugvélar á vegum félagsins. Tvisvar við flugvöll í Evrópu og einu sinni hér á landi - í sumar - þegar flugvél var í aðflugi að Keflavíkurflugvelli. Það mál var hins vegar ekki kært til lögreglunnar. Leisergeislinn blindar flugmenn og getur skapað mikla hættu. Þá hefur fréttastofa heimildir fyrir því að fyrr í þessari viku hafi kennari hér á landi hafi skaðast á auga þegar nemandi beindi öflugum lasergeisla að honum.
Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Svona mun Suðurlandsbraut líta út Innlent Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Innlent Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Innlent Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis Erlent Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu Innlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Innlent „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Innlent Fleiri fréttir Myndbirtingar á börnum geta skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Viðreisnarfélögum fjölgað um helming fyrir prófkjör Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Guðjón endurkjörinn og Simon líka Mannabreytingar samráðsfunda eins og tiltekt á jólakortalista Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Verðbólgan eykst en loðnan gleður Bein útsending: Opinn fundur um áfallaþol Íslands Sakar mótframbjóðanda um trúnaðarbrest og kallar eftir prófkjöri Sjá meira