Segir niðurstöðuna setja skýrt fordæmi 27. janúar 2010 03:15 Bankar Kæra Símans vegna yfirtöku Vestia, dótturfélags Landsbankans, á Teymi varð til þess að fordæmisgefandi úrskurður féll hjá áfrýjunarnefnd um samkeppnismál.Fréttablaðið/gva
Niðurstaða áfrýjunarnefndar um samkeppnismál vegna samruna Vestia og Teymis setur skýrt fordæmi fyrir yfirtöku bankanna á fyrirtækjum á samkeppnismarkaði, segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra. Í úrskurði áfrýjunarnefndarinnar frá því fyrir helgi er Samkeppniseftirlitinu gert að fjalla aftur um yfirtöku Vestia, dótturfélags Landsbankans, á Teymi, móðurfélagi Vodafone símafyrirtækisins. Nefndin beindi því til eftirlitsins að setja skilyrði fyrir samrunanum, og vísar til þess í úrskurði sínum að hætta geti verið á að samkeppni raskist vegna yfirtöku banka á fyrirtækjum á markaði. „Þetta er mjög áhugaverður úrskurður, og blasir við að hann verður fordæmisgefandi að einhverju marki,“ segir Gylfi. Þegar bankarnir yfirtaka fyrirtæki í stað þess að setja þau í þrot er það gert í þeim tilgangi að reyna að fá meira upp í skuldir með því að reka fyrirtækin áfram, og selja þegar betur árar. Þar geta samkeppnissjónarmið og hagsmunir bankans togast á, segir Gylfi. Miklu skipti fyrir samkeppnisaðila, eigendur og starfsmenn hvernig staðið sé að málum. Þessi úrskurður leggur línurnar í þeim álitamálum, segir Gylfi. Samkeppniseftirlitið fái aukin tæki, og fyrir það sé lagt að veita bönkunum meira aðhald þegar þeir taki yfir fyrirtæki. „Væntanlega verða þá bankarnir að taka meira tillit til samkeppnismála og hafa fyrirtækin skemur undir sínum verndarvæng,“ segir Gylfi. Þó verði að taka tillit til hagsmuna bankanna með því að neyða þá ekki til að selja fyrirtækin of snemma. Gylfi segist ekki telja að stjórnvöld þurfi að breyta lögum sérstaklega til að auka við eða draga úr heimildum Samkeppniseftirlitsins vegna úrskurðar áfrýjunarnefndarinnar. Eðlilegt sé að áfrýjunarnefndin túlki lög og leggi línurnar, þó auðvitað sé svo hægt að kæra úrskurði nefndarinnar til dómstóla. Sé úrskurðunum ekki hnekkt fyrir dómstólum hafi þeir ótvírætt fordæmisgildi.brjann@frettabladid.is
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Fleiri fréttir Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Sjá meira