Innlent

Gísli tekur sér leyfi frá opinberu hlutverki sínu

Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, skilaði í dag inn framboði í oddvitasæti í innanflokksprófkjöri Framsóknarflokksins vegna sveitarstjórnarkosninga í Kópavogi í vor.

„Í tilefni af þessu hef ég tilkynnt ráðherra að ég taki mér leyfi frá opinberu hlutverki talsmanns neytenda fram að prófkjörinu," segir í tilkynningu frá Gísla. „Mun ég beina því til ráðherra að meta hvort setja þurfi annan löghæfan mann til að sinna því hlutverki á meðan - almennt eða í einstökum tilvikum."

Þá segir Gísli að öðrum verkefnum talsmanns neytenda muni hann sinna með óbreyttum hætti - „svo sem að leiðbeina neytendum um færar leiðir til úrlausnar ágreiningsmála og kynna þeim réttarreglur um neytendamál. Ákvörðun þessi er tekin að höfðu samráði við starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins."

Gísli mun einnig fram að prófkjöri víkja sem formaður laganefndar Framsóknarflokksins og hefur hann tilkynnt ritara flokksins þá ákvörðun.

Prófkjörið fer fram 27. febrúar nk. og er þátttaka í því bundin við skráða flokksfélaga í Framsóknarflokknum.

Fjórir vilja í oddvitasætið

Það stefnir í harðan slag um oddvitasætið hjá framsóknarmönnum í Kópavogi því auk Gísla hafa þau Ómar Stefánsson, núverandi oddviti, Una María Óskarsdóttir varabæjarfulltrúi og Einar Kristján Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, boðið sig fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×