Björn Valur: Þjóðin þarf ekki Friðrik Sophusson 25. janúar 2010 15:54 Björn Valur Gíslason.
Björn Valur Gíslason, varaformaður fjárlaganefndar og þingmaður Vinstri grænna, er ósáttur við skipan Friðriks Sophussonar, sem stjórnarformanns Íslandsbanka. Hann vill að stjórnendur bankans endurskoði ákvörðun sína. „Þetta er ekki það sem íslenska þjóðin þarf á að halda núna," segir Björn Valur. Friðrik var fyrr í dag kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka. Fjórir af sjö stjórnarmönnum bankans eru útlendingar. Friðrik er fyrrverandi forstjóri Landsvirkjunar. Hann var áður fjármálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins. „Þjóðin þarf ekki á því að halda að verið sé að raða fyrrverandi stjórnmálaleiðtogum inn í bankana. Ég tala nú ekki um þegar tilkynnt er um að skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis dregst á langinn vegna yfirgripsmikillar vinnu. Þetta er ekki í þeim anda sem þjóðin ætlaði að reisa sig við," segir Björn Valur í samtali við fréttastofu. Hann vill að stjórnendur Íslandsbanka endurskoði ákvörðun sína og setji þess í stað inn einhvern sem nýtur trausts og trúnaðar í þjóðfélaginu. „Í þessu tilfelli er verið að setja inn varaformann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra. Mann sem hefur verið áberandi í stjórnmálaumræðunni í áratugi og ötull flokksmaður þess stjórnmálaflokks sem mesta ábyrgð ber á hruninu," segir Björn Valur.
Tengdar fréttir Friðrik Sophusson stjórnarformaður Íslandsbanka Friðrik Sophusson hefur verið skipaður formaður stjórnar Íslandsbanka en það var tilkynnt fyrir stundu. Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, verður einnig í stjórn bankans. 25. janúar 2010 13:58 Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Lögreglan leitar að Heklu Innlent Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Innlent Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Innlent Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Innlent Fleiri fréttir Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Bíða enn bóta eftir ofbeldið á Hjalteyri: „Við erum týnd og gleymd“ Lokar athugun á eftirliti MAST með blóðmerahaldi án athugasemda Þyrlan kölluð út vegna manns í sjálfheldu Lögreglan leitar að Heklu Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Fagráðið harmar brotthvarf Hildigunnar Icelandair verðmætara í rekstri en partasölu Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Veðurstofan rýnir breyttar jarðhræringar Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Sjúklingar enn á göngum bráðamóttökunnar Frekari ESB-umræður í þinginu Lögregla varar enn á ný við vasaþjófum Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Áfram skúrir í dag Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Sjá meira
Friðrik Sophusson stjórnarformaður Íslandsbanka Friðrik Sophusson hefur verið skipaður formaður stjórnar Íslandsbanka en það var tilkynnt fyrir stundu. Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, verður einnig í stjórn bankans. 25. janúar 2010 13:58