Innlent

Mannréttindi og vernd verði sett í öndvegi

Hér sést hermaður huga að meiðslum ellefu ára gamals drengs eftir jarðskjálftana á Haítí.  Fréttablaðið/AP
Hér sést hermaður huga að meiðslum ellefu ára gamals drengs eftir jarðskjálftana á Haítí. Fréttablaðið/AP

Mannréttindasamtökin Amnesty Inter­national leggja áherslu á nauðsyn þess að mannréttindi og vernd þeirra verði sett í öndvegi við neyðaraðstoð og enduruppbyggingu á Haítí. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem samtökin sendu frá sér í gær.

„Samtökin hvetja til þess að börn verði vernduð gegn misnotkun og mansali, réttindi þeirra sem hafa flosnað upp séu virt og konur og stúlkur fái vernd gegn kynbundnu ofbeldi. Samtökin leggja einnig áherslu á að endurreisn réttarkerfisins verði sett í forgang,“ segir í tilkynningu Íslandsdeildar samtakanna.

Þá er í yfirlýsingunni sagt nauðsynlegt að ábyrgðarhluti alþjóðlegs herliðs á svæðinu sé skilgreindur í samræmi við alþjóðlegar mannréttindareglur til að koma í veg fyrir mannréttindabrot.

Þá hvetur Amnesty International jafnframt til þess að erlendar skuldir Haítí verði afskrifaðar. Sú krafa er sögð sett fram vegna mikillar hættu á að landið geti ekki uppfyllt mannréttindi íbúa, sérstaklega efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi þeirra, verði það krafið um endurgreiðslu allra erlendra skulda.

Á reglubundnum kynningarfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir helgi kom fram að í undirbúningi væri lán til Haítí vegna uppbyggingarstarfsins, vaxtalaust til tveggja ára. Þá kom fram að niðurfelling skulda væri í umræðunni. - óká




Fleiri fréttir

Sjá meira


×