Innlent

Grunaður maður sérstakur ráðgjafi lífeyrissjóðanna

Sigríður Mogensen skrifar

Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka er sérstakur ráðgjafi lífeyrissjóðanna vegna krafna þeirra á hendur Byr. Hann hefur stöðu grunaðs í rannsókn sérstaks saksóknara vegna rannsóknar á milljarðs viðskiptum sem tengjast sparisjóðnum.

Stærstu lífeyrissjóðir landsins eiga kröfur á hendur Byr, en fjárhagsleg endurskipulagning sparisjóðsins er á lokastigi.

Lífeyrissjóðirnir hafa unnið náið saman vegna krafna sinna á hendur Byr en heimildir fréttastofu herma að Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, hafi verið ráðinn af lífeyrissjóðunum sem ráðgjafi vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar Byrs.

Styrmir Þór hefur réttarstöðu grunaðs í rannsókn sérstaks saksóknara á meintum umboðssvikum. Málið snýst um yfir eins milljarðs króna lán sem Byr veitti félaginu Exeter eftir bankahrunið til að kaupa stofnfjárhluti í Byr, meðal annars af MP banka. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að Styrmir Þór hafi verið í lykilhlutverki í viðskiptunum, í samvinnu við stjórnendur Byrs. Viðskiptin ollu sparisjóðnum gríðarlegu tjóni.

Stjórn Byrs mun vera ósátt við það að Styrmir Þór sé ráðgjafi lífeyrissjóðanna vegna krafna þeirra á hendur sparisjóðnum, enda standi rannsókn sérstaks saksóknara enn yfir. Heimildir herma að sparisjóðsstjóri Byrs hafi nú þegar komið þeim skilaboðum til lífeyrissjóðanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×