Mikil tækifæri í heilsuferðarþjónustu 27. janúar 2010 03:00 Mynd/GVA
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðar- og ferðamálaráðherra, segir mikil tækifæri felast í heilsuferðarþjónustu hér á landi. Stofnfundur Samtaka um heilsuferðaþjónustu er á morgun. Katrín segir að niðurstöður vinnuhóps iðnaðarráðuneytisins sýna að með markaðssetningu undir sameiginlegu merki íslenskrar heilsuferðaþjónustu megi fjölga umtalsvert ferðamönnum sem hingað koma í hressingarmeðferðir ýmis konar. „Uppbygging heilsuferðaþjónustu mun geta aukið arðsemi í íslenskri ferðaþjónustu, bæði vegna þess hvað markhópurinn er verðmætur og að þessi hópur komi allt árið um kring," segir ráðherrann.Hægt að skilgreina heilsuferðaþjónustu afar vítt Katrín segir að þetta verkefni eigi ekki eingöngu að taka til lækningaferðaþjónustu. Skilgreina megi heilsuferðaþjónustu mjög vítt. „Þarna má fella undir baðmenningu, jarðhita, óspillta náttúru, gæði íslenskra matvæla, útivist og svo framvegis. Við eigum frábæra frumkvöðla í íslenskum ferðaþjónustuiðnaði og vonandi taka þeir sem flestir þátt í starfi hinna nýju samtaka um heilsuferðaþjónustu. Umtalsverð undirbúningsvinna hefur verið unninn í iðnaðarráðuneytinu í tengslum við þetta mál og sé miðað við þátttöku í vinnusmiðju sem haldin var á vegum Ferðamálstofu í nóvember, þá er geysilegur áhugi á meðal íslenskra ferðaþjónustuaðila að sækja inn á þennan markað," segir Katrín. Katrín skipaði vinnuhóp síðastliðið haust til þess að koma með tillögur um hvernig mætti efla þennan þátt ferðamannaiðnaðarins. Magnús Orri Schram, þingmaður, hefur stýrt starfi hópsins og hann segir að mikill áhugi sé á meðal íslenskra ferðaþjónustuaðila að gera út á þennan markað. Minna háð veðurfari en hefðbundinn ferðamennska „Hér á landi höfum við glímt við vandamál sem tengjast því hvað ferðamannatíminn er stuttur. Það er allt uppbókað, bæði hótel, ferðir og bílaleigubílar yfir hásumarið og svo er mun minna að gera yfir vetrarmánuðina," segir þingmaðurinn. „Með aukinni sókn í heilsuferðir þá vonumst við til að ná upp eftirspurn aðra mánuði ársins, en þessi ferðamennska er mun minna háð veðurfari en hefðbundinn ferðamennska," segir Magnús Orri. Á morgun er formlegur stofnfundur Samtaka um heilsuferðaþjónustu. Fundurinn fer fram í nýja Nauthól við Nauthólsvík og hefst klukkan 9:30. Allir áhugasamir um málefni er hvattir til að mæta og mun Katrín Júlíusdóttir ávarpa fundinn.
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Innlent Fleiri fréttir Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Sjá meira