Beaty geti ekki hætt við kaupin á HS Orku Hafsteinn Hauksson skrifar 2. ágúst 2010 18:56
Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar fær ekki séð að forstjóri Magma Energy geti hætt við kaupin á HS orku. Hann segir að ef ríkið ætli sér að grípa inn í viðskiptin muni Reykjanesbær kanna rétt sinn gagnvart hinu opinbera. Financial Times greindi frá því í gær að Ross Beaty, forstjóri kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy, hótaði að fresta eða jafnvel hætta við kaup fyrirtækisins á HS Orku vegna pólitískrar óvissu í landinu. Ríkisstjórn landsins hefur lýst því yfir að hún sé staðráðin í að vinda ofan af einkavæðingu innan orkugeirans. Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, segir mikilvægt fyrir bæjarfélagið að af viðskiptunum verði. Fyrirtækið yfirtekur þá skuldabréf sem bærinn á og Geysir Green Energy hefur verið greiðandi að, en Böðvar segir að Magma sé ábyggilegri greiðandi en Geysir Green að mati Deloitte. Hann telur ekki að forstjóri Magma geti hætt við kaupin. „Nei, ég get nú ekki séð að hann geti hætt við það. Auðvitað hlýtur hann samt að vera orðinn þreyttur á viðbrögðum og viðhorfum íslenskra stjórnvalda eins og komið er fram gagnvart þessu fyrirtæki sem er að reyna að fjárfesta hér í íslensku atvinnulífi og byggja upp atvinnu," segir Böðvar. Böðvar telur þó frekar standa upp á Geysi Green Energy, sem er seljandi hlutarins, að leita réttar síns gagnvart Magma verði kaupunum rift að frumkvæði fyrirtækisins eins og Beaty hótar. Hins vegar muni Reykjanesbær kanna réttarstöðu sína gagnvart hinu opinbera, komi ríkisvaldið í veg fyrir söluna. „Ef ríkið ætlar að grípa inn í þessi fullkomlega eðlilegu viðskipti sem fara fram samkvæmt íslenskum lögum og leikreglum þá mun Reykjanesbær auðvitað kanna rétt sinn gagnvart ríkinu og slíkum inngripum. Ég reikna með að hið sama eigi svo við um aðra sem seldu hlut sinn í HS orku með sama hætti, eins og Hafnarfjarðarbær og Orkuveita Reykjavíkur," segir Böðvar að lokum.
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Sjá meira