Innlent

Neslistinn með prófkjör

Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Bæjarmálafélag Seltjarnarness efnir til prófkjörs vegna vals frambjóðenda á Neslistann fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí samkvæmt ákvörðun félagsfundar í nóvember. Prófkjörið fer fram 20. febrúar næstkomandi og rennur framboðsfrestur út á hádegi mánudaginn 1. febrúar.

Niðurstaða í prófkjöri Neslistans er bindandi fyrir tvö efstu sætin. Stjórn félagsins gerir að öðru leyti, í samvinnu við prófkjörsnefnd, tillögu um framboðslista á grundvelli niðurstöðu prófkjörsins, að fram kemur í tilkynningu.

Bæjarmálafélag Seltjarnarness hefur boðið fram Neslistann frá árinu 1990. Sjálfstæðisflokkurinn fékk fimm bæjarfulltrúa kjörna í kosningunum 2006 og Neslistinn tvo.

Prófkjör sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi fór fram í byrjun nóvember. Samfylkingin býður í vor í fyrsta sinn fram undir eigin nafni í bæjarfélaginu og verður valið í efstu sæti listans í prófkjöri laugardaginn 30. janúar næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×