Átelur stjórnvöld vegna Magma-máls 31. júlí 2010 03:15 Stjórnvöld fá ákúrur frá Viðskiptaráði í nýútkominni greinargerð. fréttablaðið/vilhelm
Viðskiptaráð er mjög óánægt með framgöngu ríkisstjórnarinnar í máli kanadíska fyrirtækisins Magma Energy. Í greinargerð frá Viðskiptaráði um málið segir að hringlandaháttur, stefnuleysi og ákvarðanafælni stjórnvalda í stórum og mikilvægum málum geri mörgum aðilum í atvinnulífinu erfitt um vik. Greinargerð Viðskiptaráðs var birt í gær og fjallar um erlenda fjárfestingu. Þar segir að fjárfesting sé ein af grunnstoðum hagvaxtar og forsenda þess að endurreisn hagkerfisins geti orðið að veruleika fyrr en síðar. Pólitísk afskipti séu því ekki til þess fallin að stuðla að sameiginlegu markmiði okkar allra, að efla hagvöxt og með því lífskjör á komandi árum. Viðskiptaráð bendir á þá staðreynd að Ísland er í öðru sæti á lista yfir þau aðildarríki OECD sem hafa mestar takmarkanir á beinni fjárfestingu erlendra aðila. Af því megi ráða að Ísland sé almennt eftirbátur annarra ríkja þegar kemur að umgjörð fjárfestingar í alþjóðlegu samhengi. Enn fremur kemur fram í greinargerðinni að Viðskiptaráð telji atburði undanfarinna vikna ekki til þess fallna að efla tiltrú erlendra fjárfesta á Íslandi. Eðlilegt sé að spyrja sig hvort fjárfestar muni yfirhöfuð hætta á að fjárfesta hérlendis á komandi árum af ótta við pólitísk afskipti af einstökum verkefnum eða fjárfestingum. - mþl
Mest lesið Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum Innlent Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Erlent Einhliða vopnahlé Rússa hafið Erlent „Íslenskir bankar eru með belti, axlabönd, sikrisnælur og hjálma“ Innlent Til skoðunar hvort hægt sé að innheimta leigu beint af tekjum Innlent Hefur áhyggjur af því að Amgen „gleypi Íslenska erfðagreiningu og spýti því út“ Innlent „Hann var með háðslegt glott, þetta var svo lítið mál“ Innlent „Þetta er svona eitraður kokteill” Innlent „Þetta er mál sem varðar ekki einungis kaþólsku kirkjuna“ Innlent Efla eftirlit með áfengissölu á íþróttaleikjum Innlent Fleiri fréttir Annar snarpur skjálfti við Ljósufjöll Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum „Þetta er mál sem varðar ekki einungis kaþólsku kirkjuna“ „Íslenskir bankar eru með belti, axlabönd, sikrisnælur og hjálma“ „Þetta er svona eitraður kokteill” Til skoðunar hvort hægt sé að innheimta leigu beint af tekjum Hefur áhyggjur af því að Amgen „gleypi Íslenska erfðagreiningu og spýti því út“ Efla eftirlit með áfengissölu á íþróttaleikjum Páfaspenna, drykkjulæti og umdeildur útburður „Hann var með háðslegt glott, þetta var svo lítið mál“ Skora á stjórnvöld að skoða áhrifin af hærra veiðigjaldi á Vestfirði Konan í gæsluvarðhaldi í mánuð til viðbótar Sagðir hafa stolið viðkvæmum rannsóknargögnum frá lögreglu og saksóknara Bein útsending: Staða ungs fatlaðs fólks á húsnæðis- og leigumarkaði Segist hafa tryllst þegar Hafdís hótaði forræðissviptingu Ekkert sem bendi til málþófs um veiðigjöld Þeir sem gangi inn sem páfaefni gangi út sem kardinálar Skorað á Ísraela og átök hafin milli Indlands og Pakistans Ekki hægt að renna sér í Lágafellslaug næstu vikuna Rekstur Reykjanesbæjar fram úr vonum vegna hærri útsvarstekna Veiðigjöldin enn rædd en þó ekki á dagskrá í dag Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Stútur á 106 þar sem hámarkshraði var sextíu Vilja að ríkisstarfsmenn geti starfað til 73 ára aldurs Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Boða sprengingar við Hvammsvirkjun í allt sumar Moskítóflugur muni koma til Íslands Áberandi ráðamenn „keppist við að hnykla vöðva sína, beita hótunum og þvingunum“ Ekki inni í myndinni að fyrirkomulag hvalveiða haldist óbreytt Fékk rætin skilaboð vegna veðmála eftir að hafa klikkað á vítum Sjá meira