Mannréttindi og vernd verði sett í öndvegi 27. janúar 2010 03:00 Hér sést hermaður huga að meiðslum ellefu ára gamals drengs eftir jarðskjálftana á Haítí. Fréttablaðið/AP
Mannréttindasamtökin Amnesty International leggja áherslu á nauðsyn þess að mannréttindi og vernd þeirra verði sett í öndvegi við neyðaraðstoð og enduruppbyggingu á Haítí. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem samtökin sendu frá sér í gær. „Samtökin hvetja til þess að börn verði vernduð gegn misnotkun og mansali, réttindi þeirra sem hafa flosnað upp séu virt og konur og stúlkur fái vernd gegn kynbundnu ofbeldi. Samtökin leggja einnig áherslu á að endurreisn réttarkerfisins verði sett í forgang,“ segir í tilkynningu Íslandsdeildar samtakanna. Þá er í yfirlýsingunni sagt nauðsynlegt að ábyrgðarhluti alþjóðlegs herliðs á svæðinu sé skilgreindur í samræmi við alþjóðlegar mannréttindareglur til að koma í veg fyrir mannréttindabrot. Þá hvetur Amnesty International jafnframt til þess að erlendar skuldir Haítí verði afskrifaðar. Sú krafa er sögð sett fram vegna mikillar hættu á að landið geti ekki uppfyllt mannréttindi íbúa, sérstaklega efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi þeirra, verði það krafið um endurgreiðslu allra erlendra skulda. Á reglubundnum kynningarfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir helgi kom fram að í undirbúningi væri lán til Haítí vegna uppbyggingarstarfsins, vaxtalaust til tveggja ára. Þá kom fram að niðurfelling skulda væri í umræðunni. - óká
Mest lesið Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla Innlent Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Innlent „Það verður boðið fram í nafni VG“ Innlent Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Innlent „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Innlent Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Innlent Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Innlent Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Innlent Fleiri fréttir „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Jónína vill taka við af Ásmundi Einari „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Sjá meira