Innlent

Alþingi götunnar komið á fót - kröfuganga á laugardag

Nokkur grasrótarsamtök, Hagsmunasamtök heimilanna þar á meðal, áforma að standa fyrir göngu niður Laugaveginn frá Hlemmi klukkan tvö á laugardag. Gengið verður á Austurvöll og þar verður Alþingi götunnar formlega komið á fót. Í tilkynningu frá samtökunum, sem hafa sameiginlega ást á lýðræðislegum gildum og valdi fólksins yfir eigin lífi, segir að markmiðið sé að gefa skýr skilaboð til umheimsins.

„Gefum lýðræðishugsjónum byr undir báða vængi. Gefum skýr skilaboð til umheimsins, lýðræðið er númer eitt, valdið er fólksins," segir ennfremur um leið og fólk er hvatt til þess að mæta á Hlemm og kjósa með fótunum í göngunni niður Laugaveginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×