Hundruð mótmælenda við þinghúsið 6. ágúst 2009 00:45 Mahmoud Ahmadinejad Mikil ólga er enn í Íran vegna umdeildra kosningaúrslita. fréttablaðið/AP
Hundruð mótmælenda létu í sér heyra við þinghúsið í Teheran í gær þegar Mahmoud Ahmadinejad sór embættiseið fyrir annað kjörtímabil sitt sem forseti. Þrír mótframbjóðendur hans í embætti, helstu leiðtogar stjórnarandstöðunnar á þingi og fjöldi þingmanna var fjarverandi. Lögregla greip til barefla og piparúða til að dreifa mannfjöldanum, sem hafði safnast saman skammt frá þinghúsinu og hrópaði slagorð gegn Ahmadinejad. Margir sögðust óska honum dauða. Sumir mótmælendur klæddust svörtum stuttermabolum, sem tákn sorgar, en aðrir klæddust grænum fötum, sem er litur stjórnarandstöðunnar. Úrslit forsetakosninganna, sem haldnar voru 12. júní, hafa verið umdeild. Stjórnvöld hafa verið sökuð um að falsa niðurstöðurnar. Ahmadinejad sé því ekki réttkjörinn forseti. Ólgan í landinu undanfarnar vikur hefur verið sú mesta síðan íslömsku klerkarnir gerðu byltingu gegn keisarastjórninni. Valdastéttin er klofin í afstöðu sinni til Ahmadinejads og meira að segja íhaldsmenn úr hópi stuðningsmanna hans sjálfs hafa gagnrýnt stjórnina harðlega fyrir þá grimmilegu meðferð sem sumir mótmælendur hafa mátt sæta. Stjórnin hefur hins vegar sakað Bandaríkjamenn og Vesturlönd um að standa að baki mótmælunum og nýta sér þau í áróðursskyni á alþjóðavettvangi. Sjálfur sagðist Ahmadinejad í ræðu sinni ekki ætla að þola nein afskipti að utan, en hét því jafnframt að láta áfram til sín taka á alþjóðavettvangi: „Við verðum að gegna lykilhlutverki í stjórnun heimsins," sagði hann. „Við munum ekki þegja. Við munum ekki þola vanvirðingu, afskiptasemi og móðganir." - gb
Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Sjá meira