Enn í haldi lögreglu grunaður um íkveikju 14. janúar 2009 21:46 Frá Tryggvagötu 10 í dag. MYND/Ingólfur Júlíusson. MYND/Ingólfur Júlíusson
Karlmaður sem grunaður er um íkveikju þegar eldur var lagður að í húsi við Tryggvagötu um hádegisbilið í dag er enn í haldi lögreglu og gistir í fangageymslu í nótt. Maðurinn og kona sem búsett er í húsinu, sem skemmdist mikið, höfðu átt í erjum. Maðurinn hellti eldfimum vökva inn um bréfalúguna hjá konunni í gær og var hún einmitt stödd á lögreglustöðinni til þess að kæra manninn þegar hann birtist aftur við húsið og var með logandi sígarettu. Sambýliskona konunnar var þá ein heima og ýtti hann henni frá og rauk inn. Því næst kveikti hann í íbúðinni og kom sér í burtu. Konan forðaði sér einnig áður en eldurinn náði að magnast. Samkvæmt lögreglu var maðurinn í annarlegu ástandi þegar hann var handtekinn. Lögregla tók skýrslur af vitnum í dag.
Tengdar fréttir Handtekinn grunaður um íkveikju á Tryggvagötu Einn maður hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa kveikt í húsinu á Tryggvagötu 10 sem skemmdist mikið í eldi fyrr í dag. Að sögn lögreglu var hann handtekinn í nágrenninu og er rökstuddur grunur um að hann hafi komið að málum. Eins og Vísir greindi frá fyrr í dag er talið að málið tengist fjölskylduerjum en ein fjölskylda bjó í húsinu sem var mannlaust þegar eldurinn kom upp. 14. janúar 2009 14:30 Náði að forða sér út eftir að kveikt var í íbúðinni - myndband Lárus Pálmi Magnússon, eigandi veitingastaðarins Krua Thai sem staðsettur er í næsta húsi við Tryggvagötu 10 sem brann í dag segir að brennuvargurinn sé eiginmaður starfsstúlku á staðnum. Konan var búsett í húsinu ásamt fleirum og höfðu hjónin átt í erjum undanfarið. 14. janúar 2009 15:40 Eldurinn slökktur á Tryggvagötu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í húsi við Tryggvagötu 10 rétt eftir klukkan eitt. Sjónarvottar segja að um mikinn eld hafi að ræða og Kjartan Skaptason sem leigir aðstöðu í húsinu segist halda að kveikt hafi verið í. Mikill reykur kom út um glugga og dyr hússins og voru þrír slökkviliðsbílar á svæðinu.Eftir að slökkviliðið hóf slökkvistörf gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins. 14. janúar 2009 13:09 Grunur um íkveikju á Tryggvagötu Fjölskylda býr í húsinu við Tryggvagötu sem kviknaði í um hádegisbilið. Lögreglan hefur staðfest við fréttamann Stöðvar 2 sem er á staðnum að sterkur grunur sé um að kveikt hafi verið í húsinu. Talið er að málið tengist að einhverju leyti erjum hjá fjölskyldunni sem býr í húsinu. 14. janúar 2009 13:41 Mest lesið Bróðir Dags B „orðlaus“ yfir Kristrúnu Innlent Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Innlent Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Innlent Banaslys í Rangárþingi Innlent Inga vill skóla með aðgreiningu Innlent „Klikkuð“ norðurljós fyrir utan Selfoss Innlent Gular veðurviðvaranir framundan Veður Spítalar yfirfullir af látnum mótmælendum Erlent Bein útsending: Ráðherraskipti á ríkisráðsfundi Innlent Meirihluti hlynntur aðildarviðræðum: „Margt breyst á stuttum tíma“ Innlent Fleiri fréttir Húsnæðismálin „helsti drifkraftur verðbólgu síðasta áratuginn“ Segir ESB stærstu ógnina við viðskiptahagsmuni landsins Sviminn hvarf eftir aðgerðina og hækjan horfin Banaslys í Rangárþingi Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Bein útsending: Ráðherraskipti á ríkisráðsfundi Fyrsta ár Náttúruverndarstofnunar gekk glimrandi vel Inga vill skóla með aðgreiningu Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Meirihluti hlynntur aðildarviðræðum: „Margt breyst á stuttum tíma“ Meirihluti vill viðræður við ESB og mikið mannfall í Íran Grunaðir um íkveikju í eigin húsnæði Jóhanna Lilja, kartöflubóndi í Þykkvabæ, heiðruð Engin merki um gosóróa í skjálftahrinu á Reykjaneshrygg Inga um nýtt embætti og staða Íslands í alþjóðamálum Barn flutt á slysadeild með áverka eftir flugelda Þrír handteknir vegna gruns um íkveikju Bróðir Dags B „orðlaus“ yfir Kristrúnu „Klikkuð“ norðurljós fyrir utan Selfoss Stofna ný samtök gegn ESB aðild Miklar tafir vegna áreksturs í Vesturbæ Náið fylgst með stöðu mála í Venesúela hjá Útlendingastofnun Utanríkisráðherra Þýskalands fundar með Þorgerði Hryðjuverkamálið komið á dagskrá Hæstaréttar Seinka læknisskoðun fyrir endurnýjun ökuskírteina Íranir mótmæltu við stjórnarráðið Blendnar tilfinningar við upphaf niðurrifs í Grindavík Hefja átak í bólusetningu drengja gegn HPV veirunni Fimmtungur leikskólabarna borðar innan við tíu fæðutegundir Kom til átaka eftir þjófnað í verslun í annað sinn sama dag Sjá meira
Handtekinn grunaður um íkveikju á Tryggvagötu Einn maður hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa kveikt í húsinu á Tryggvagötu 10 sem skemmdist mikið í eldi fyrr í dag. Að sögn lögreglu var hann handtekinn í nágrenninu og er rökstuddur grunur um að hann hafi komið að málum. Eins og Vísir greindi frá fyrr í dag er talið að málið tengist fjölskylduerjum en ein fjölskylda bjó í húsinu sem var mannlaust þegar eldurinn kom upp. 14. janúar 2009 14:30
Náði að forða sér út eftir að kveikt var í íbúðinni - myndband Lárus Pálmi Magnússon, eigandi veitingastaðarins Krua Thai sem staðsettur er í næsta húsi við Tryggvagötu 10 sem brann í dag segir að brennuvargurinn sé eiginmaður starfsstúlku á staðnum. Konan var búsett í húsinu ásamt fleirum og höfðu hjónin átt í erjum undanfarið. 14. janúar 2009 15:40
Eldurinn slökktur á Tryggvagötu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í húsi við Tryggvagötu 10 rétt eftir klukkan eitt. Sjónarvottar segja að um mikinn eld hafi að ræða og Kjartan Skaptason sem leigir aðstöðu í húsinu segist halda að kveikt hafi verið í. Mikill reykur kom út um glugga og dyr hússins og voru þrír slökkviliðsbílar á svæðinu.Eftir að slökkviliðið hóf slökkvistörf gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins. 14. janúar 2009 13:09
Grunur um íkveikju á Tryggvagötu Fjölskylda býr í húsinu við Tryggvagötu sem kviknaði í um hádegisbilið. Lögreglan hefur staðfest við fréttamann Stöðvar 2 sem er á staðnum að sterkur grunur sé um að kveikt hafi verið í húsinu. Talið er að málið tengist að einhverju leyti erjum hjá fjölskyldunni sem býr í húsinu. 14. janúar 2009 13:41