Erlent

Netmorðinginn fékk lífstíðardóm

David Heiss fékk lífstíðardóm í dag.
David Heiss fékk lífstíðardóm í dag.

Þjóðverji fékk í dag lífstíðar fangelsisdóm fyrir að stinga ungan mann frá Nottingham 86 sinnum eftir að hann varð yfir sig hrifinn af kærustu hans. David Heiss frá Limburg í Þýskalandi varð yfir sig hrifinn af kærustu Matthew Pyke, Joanna Witton, eftir að þau kynntust á internetinu. Heiss hefur ávallt neitað sök í málinu en hann fékk lífstíðardóm í dag.

Dómarinn í málinu sagði hegðun Heiss „ógeðfelda" og dæmdi hann í að minnsta kosti átján ára fangelsi fyrir árásin sem átti sér stað á síðasta ári.

Í réttarhöldunum kom fram að Heiss hefði flogið frá Frankfurt þann 18.september árið 2008 með hníf meðferðis til Birmingham á Englandi. Hann hefur haldið því fram allan tímann að um sjálfsvörn hefði verið að ræða þar sem Pyke hefði ógnað sér með hnífi.

Witton sagði að parið hefði kynnst Heiss í gegnum netsíðu og hann hefði tvisvar komið og heimsótt þau til Nottingham áður en hann lét til skara skríða. Hann hafi sturlast eftir að Pyke lokaði á Heiss, svo hann gat ekki sent Witton skilaboð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×