Eiður Smári á ekki von á að spila með stráknum sínum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2009 14:52 Sveinn Aron tekur við viðurkenningu á hófi Íþróttamanns ársins fyrir hönd föður síns. Mynd/Stefán
Strákarnir hans Eiðs Smára Guðjohnsen voru áberandi í þættinum um Atvinnumennina okkar á Stöð 2 Sport í gær en tveir þeir eldri eru farnir að spila með yngri flokkum Barcelona. Strákarnir komu líka upp á svið í byrjun ársins og tóku móti verðlaunum pabba síns fyrir að vera meðal tíu efstu í kosningunni á Íþróttamanni ársins. Sveinn Aron verður 11 ára á maí og bróðir hans Andri Lucas er nýorðin sjö ára. Yngsti bróðurinn, Daníel Tristan, verður þriggja ára í mars. Það hefur oft verið rifjað upp þegar Arnór, faðir Eiðs Smára, sagðist ætla að spila með stráknum sínum og hversu litlu munaði að þeir feðgar spiluðu saman með landsliðinu. Fréttablaðið ræddi við Eið Smára um áramótin um þann möguleika að hann myndi spila með strákunum sínum. "Elsti strákurinn minn er tíu ára í dag ef að við reiknum með að hann komist í landsliðið 17 ára þá þarf ég að spila í sjö ár í viðbót. Ég sé það ekki gerast eins og staðan er í dag en það getur vel verið að ég verð ennþá í fullu fjöri eftir fimm ár," sagði Eiður Smári og bætti síðan við. "Ég hætti áður en ég verð kallaður gamla brýnið. Ef ég les það einhverstaðar þá hætti ég. Ég sé ekki fyrir mér að koma heim þegar ég hætti og ég held að þetta verði ekki hægur dauði," sagði Eiður Smári. Eiður Smári ætlar heldur ekki að enda í vörninni. "Ég nenni ekki að elta einhverja unga framherja sem eru að stinga sér innfyrir. En ég sé mig alveg færast aftar eins og hefur gerst á undanförnum tveimur til þremur árum," segir Eiður en framundan er að einbeita sér að spila fyrir stórlið Barcelona sem á möguleika á þrennunni í vetur. "Ég sé fyrir mér að klára saminginn hjá Barcelona, sem er þetta tímabil og næsta tímabil. Síðan ætla ég bara að skoða þá möguleika sem verða fyrir hendi og hvernig ástandið verður á mér þá. Ég ætla að njóta þess að spila knattspyrnu," sagði Eiður Smári í viðtali við Fréttablaðið um áramótin.
Fótbolti Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Sjá meira