England með eitt besta lið í heimi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. mars 2009 14:05 Thierry Henry í leik með franska landsliðinu. Nordic Photos / AFP
Thierry Henry, leikmaður Barcelona, telur að Englendingar þurfi ekkert að skammast sín fyrir knattspyrnulandsliðið sitt. Þeir séu þvert á móti með einn besta leikmannahóp heims. Enska landsliðið hefur lítið annað gert á undanförnum árum en að valda vonbrigðum. Liðið varð síðast heimsmeistari árið 1966 og hefur ekki komist í undanúrslit á stórmóti síðan 1996 er EM var haldið í Englandi. Liðinu hefur þó gengið vel í undankeppni HM 2010 þar sem liðið hefur unnið alla fjóra leiki sína til þessa. Næst mætir England liði Úkraínu á heimavelli á miðvikudaginn í næstu viku. „Ég hef alltaf haldið því fram að þið Englendingar væruð með eitt besta lið í heimi," sagði Henry í samtali við enska götublaðið The Sun. „Sjáið bara leikmenn eins og John Terry, Ashley Cole, Frank Lampard, Steven Gerrard, Wayne Rooney og Rio Ferdinand. Þetta eru leikmenn sem standa sig í hvaða keppni sem er, hvort sem það er í ensku úrvalsdeildinni eða Meistaradeildinni." „Gerrard gæti komist í byrjunarlið hvaða félags sem er. Það sama má segja um Lampard, Rooney, Terry og Ferdinand." „Ég gæti farið svona í gegnum allan leikmannahópinn. Þið eruð með sex eða sjö leikmenn sem eru í algjörum heimsklassa." Henry sagði einnig að Theo Walcott, fyrrum samherji hans hjá Arsenal, eigi góðan möguleika á því að komast í þennan hóp. „Hann er enn ungur og þarf tíma," sagði Henry. „Þegar hann nær 100 leikjum þá mun hann búa yfir öllum þeim hæfileikum sem þarf til að ná í allra fremstu röð."
Mest lesið Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport Vinícius á förum? Fótbolti UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Fótbolti Fleiri fréttir „Rangur maður til að leiða þessi samtök“ ÍBV - Fram | Þjóðhátíðarleikur í Dalnum „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Vinícius á förum? JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn „Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Infantino hættir við allt saman Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Arnór Gauti fékk sínar fyrstu mínútur í Króatíu „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Eru of fáar konur að starfa fyrir karlalið í knattspyrnu? Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Real Madrid klófestir besta unga leikmann spænsku deildarinnar Þór sækir fyrirliða frá Spáni Leikbanni Mudryk aflétt Slot á leið til Sádi-Arabíu? Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Kallar eftir bættum starfsháttum hjá FIFA: „Mikil samstaða“ Sjáðu Tryggva stíga trylltan dans, vítakeppni Stjörnunnar og mark Vestra Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Frá Keflavík og beint á Parken: „Draumur flestra ungra stráka“ „Mig dreymdi alla daga um að spila með Messi“ Asíuþjóðirnar taka undir áhyggjur af áætlunum FIFA Sjá meira