Weir og Broadfoot úr leik hjá Skotum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. mars 2009 12:45 David Weir í leik með skoska landsliðinu. Nordic Photos / Getty Images
Varnarmennirnir David Weir og Kirk Broadfoot verða ekki með skoska landsliðinu gegn Hollandi og Íslandi nú um mánaðamótin. Auk þeirra hefur miðvallarleikmaðurinn Kris Commons neyðst til að draga sig úr hópnum sem mætir Hollandi en vonast er til þess að hann verði orðinn klár fyrir leikinn gegn Íslandi. Sá leikur fer fram á miðvikudaginn í næstu viku. George Burley, landsliðsþjálfari Skota, hefur bætt Steven Whittaker, leikmanni Rangers, í leikmannahópinn. Þá eru þeir Barry Ferguson landsliðsfyriliði og Stephen McManus einnig tæpir vegna meiðsla. McManus er fyrirliði Celtic í heimalandinu. Það yrði gríðarlega mikið áfall fyrir þá að missa þessa menn einnig úr leikjunum gegn Hollandi og Íslandi. Ferguson er lykilmaður Skota á miðjunni og McManus er með sterkari varnarmönnum liðsins. Hvorki Weir né Ferguson voru reyndar ekki með gegn Íslandi þegar liðin mættust á Laugardalsvellinum í haust vegna meiðsla en þeir McManus, Broadfoot og Commons voru þá allir í byrjunarliðinu. Fyrirfram hefði mátt áætla að þeir Weir og McManus mynduðu miðvarðarpar skoska landsliðsins í leikjunum gegn Hollandi og Íslandi auk þess sem að Ferguson spilar nánast örugglega á miðjunni með Darren Fletcher verði hann heill. Kirk Broadfoot leikur yfirleitt í stöðu hægri bakvarðar.
Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Fleiri fréttir Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádí-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Sjá meira