Ólafur: Hef mikla trú á Bjarna Ólafi Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Glasgow skrifar 1. apríl 2009 17:25 Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari.
Vísir hitti á Ólaf Jóhannesson nú skömmu fyrir leik Skotlands og Íslands á Hampden Park þar sem hann ræddi byrjunarlið sitt sem hann tilkynnti nú síðdegis. Hann gerði þrjár breytingar á liðinu sem mætti Liechtenstein á La Manga í febrúar síðastliðnum. Þeir Bjarni Ólafur Eiríksson, Pálmi Rafn Pálmason og Helgi Valur Daníelsson komu nýir inn í liðið. Bjarni Ólafur er eini leikmaðurinn í íslenska leikmannahópnum sem leikur ekki erlendis en Ólafur sagðist ekki vera hræddur við að setja hann í byrjunarliðið af þeirri ástæðu. „Ekki fyrir fimm aura. Ég hef alltaf haft mikla trú á Bjarna Ólafi enda góður fótboltamaður. Hann var í liðinu hjá mér þegar ég byrjaði en svo meiddist hann og datt út. Þá tók Indriði stöðuna," sagði Ólafur en Indriði leikur nú á vinstri kantinum. „Ég vildi setja varnarsinnaðan mann á vænginn," sagði Ólafur um hlutverk Indriða í leiknum. „Þeir verða grimmir á vængjunum og bakverðirnir koma hátt upp á völlinn. Hinum megin er svo Pálmi Rafn sem er fínn í fótbolta og ef til vill betri á boltanum en Indriði. En ég treysti honum líka til að skila sínu varnarhlutverki vel." Ólafur ákvað að stilla Helga Val Daníelssyni við hlið Arons Einars Gunnarssonar á miðjunni en ekki Eggerti Gunnþóri Jónssyni eins og kom til greina. „Helgi Valur býr yfir líkamlegum styrk. Hann er þar að auki rólegur og yfirvegaður á boltanum. Hann er alhliða góður miðjumaður." Arnór Smárason fær það mikilvæga hlutverk að vera einn í sókninni en hann mun njóta góðs stuðnings Eiðs Smára Guðjohnsen. „Það er auðvitað alltaf áhættusamt að setja ungan leikmann í svona leik," sagði Ólafur um Arnór. „En ég tel að hann geti sinnt sínu hlutverki og klárað sitt mjög vel. Þarna réði mestu að hann er fljótur og frískur leikmaður." Að síðustu var Ólafur spurður um þá ákvörðun að velja Gunnleif Gunnleifsson í markið á kostnað Árna Gauts Arasonar. „Það var mjög erfið ákvörðun. Við erum með tvo frábæra markverði og það er sama hvor þeirra hefði verið í marki - enda treysti ég þeim báðum 100 prósent. Á endanum komst ég að þessari niðurstöðu en ákvörðunin var erfið." Leiknum verður lýst beint á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins.
Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Fleiri fréttir Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádí-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira