Ferguson og McGregor gáfu Skotum fingurinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. apríl 2009 11:00 Forsíða The Scottish Sun og baksíða Daily Record í dag.
Þeir Barry Ferguson og Allan McGregor svöruðu stuðningsmönnum Skotlands fullum hálsi þegar púað var á þá skömmu fyrir leik Skotlands og Íslands í gær. Þegar vallarþulurinn kynnti leikmenn til sögunnar púuðu áhorfendur á þá Ferguson og McGregor. Þeir brutu agareglur landsliðsins er þeir sátu lengi við drykkju nú um helgina. Þeir báðust þó afsökunar á athæfi sínu og fengu að vera á bekknum í gær. Hvorugur kom þó við sögu í leiknum. Skosku dagblöðin birta mörg myndir af þeim tveimur þar sem þeir mynda V-merki með fingrum sínum. Þar með sendu þeir stuðningsmönnum skoska landsliðsins kaldar kveðjur en þetta fellur í sama flokk og að sýna einhverjum „fingurinn". „Up yours, Scotland," segir í fyrirsögn á baksíðu The Scottish Sun. Daily Record tekur annan pól í hæðina og segir „You're right boys ... V were brilliant." The Sun er svo með sérstakan átta síðna blaðakálf sem fjallar eingöngu um Barry Ferguson og vandræði hans síðustu daga. Er ekkert fjallað um leik Skotlands og Íslands á þeim stað í blaðinu heldur eingöngu rætt um skömm fyrirliðans. Á forsíðu kálfsins er fyrirsögnin „You've let us all down".
Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Fleiri fréttir Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Liðsfélagi landsliðsmanns missti unga frændur sína í sprengingu Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Fótboltamaður skotinn til bana Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Fjórir frá hjá Blikum á morgun Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum KSÍ missti af meira en milljarði króna City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Man United ósátt við Marokkó og FIFA „Fyrir mér er Flamengo stærra en Real Madrid“ Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Sjá meira