200. mark Þýskalands á næsta leiti Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. mars 2009 12:45 Þýska landsliðið á góðri stundu. Nordic Photos / Getty Images
Þjóðverjar geta um helgina bæst í fámennan hóp landsliða í Evrópu sem hafa skorað 200 mörk í leikjum í undankeppni HM frá upphafi. Sex lið hafa náð þessum áfanga nú þegar en líklegt verður að teljast að Þjóðverjar bætist í þennan hóp á laugardaginn er liðið mætir Liechtenstein í undankeppni HM 2010. Þjóðverjar hafa skorað 199 mörk í alls 68 leikjum í undankeppni HM en hinar sex þjóðirnar hafa þurft mun fleiri leiki til að ná slíkum hæðum. Hollendingar hafa skorað flest mörk, 229 talsins, í 100 leikjum. Það sem er enn merkilegra er að Þjóðverjar hafa aðeins tapað tveimur af þessum 68 leikjum og gert sextán jafntefli. Þjóðverjar voru ósigraðir í undankeppni HM allt þar til liðið mætti Portúgal þann 16. október 1985 í Stuttgart. Portúgal vann leikinn, 1-0, en Vestur-Þjóðverjar voru þá þegar búnir að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni í Mexíkó. Hann tapleikurinn er einn frægasti landsleikur síðari ára. Það var í undankeppni HM 2002 og var Þýskalandi í riðli með Englandi. Þessi lið mættust þann 1. september 2001 á Ólympíuleikvanginum í München og unnu þeir ensku 5-1 sigur þar sem Michael Owen skoraði þrennu. Aðeins eitt lið komst beint áfram í úrslitakeppnina í Suður-Kóreu og Japan og náði England efsta sæti riðilsins á hagstæðri markatölu. Þjóðverjum gekk svo betur í sjálfri úrslitakeppninni þar sem liðið komst í úrslitaleikinn en tapaði fyrir Brasilíu - sem vann England í fjórðungsúrslitunum. Josef Rasselnberg skoraði fyrsta mark Þýskalands í leik í undankeppni HM árið 1934 en markahæstur Þjóðverja í slíkum leikjum er Karl-Heinz Rummenigge með þrettán mörk. Þýskaland hefur í sex skipti ekki tekið þátt í undankeppni HM. Liðið þurfti þess ekki fyrir keppnirnar 1978 og 1994 þar sem það var ríkjandi heimsmeistari. Þýskaland var svo gestgjafi í úrslitakeppni HM árin 1958, 1974 og 2006 og tók því ekki þátt í undankeppninni. Þýskaland tók heldur ekki þátt í undankeppni HM 1950 enda síðari heimsstyrjöldinni þá nýlokið.
Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Náði að plata Óskar Örn Sport Fleiri fréttir Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádí-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira