Innlent

Hafa upplýst 31 innbrots- og þjófnaðarmál á þremur vikum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan. Mynd/ Stefán
Lögreglan. Mynd/ Stefán
Lögreglan á Akureyri hefur upplýst 31 innbrots- og þjófnaðarmál á síðastliðnum þremur vikum.

Á meðal þeirra er innbrot sem framið í verslunina í Vaglaskógi í Fnjóskadal í september. Þar voru fjórir drengir á aldrinum 17-19 ára að verki. Í innbrotinu var stolið talsverðu af sælgæti, gosi, drykkjarvörum og ýmsum smáhlutum. Samkvæmt upplýsingu frá lögreglunni voru einnig unnar nokkrar skemmdir á húsnæðinu.

Þá hefur lögreglan einnig upplýst tvö innbrot í fyrirtækið Verkval á Akureyri sem áttu sér stað í nóvember síðastliðinn. Þar voru þrír drengir einnig á aldrinum 17-19 ára að verki. Einn þeirra var jafnframt viðriðinn innbrotið í Vaglaskógi. Í Verkvali var stolið ýmsum verkfærum, tölvubúnaði og ýmsu smádóti svo sem fjarðstýrðum leikfangabílum. Einnig voru unnar nokkrar skemmdir á hurðum, gluggum og tölvubúnaði. Samkvæmt upplýsingu frá lögreglunni hafa allir þessir piltar komið við sögu lögreglu áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×