Innlent

Milljarður frá ríki til samtaka bænda

réttir Ríkið hefur með samningi, sem rennur út á næsta ári, falið Bændasamtökum Íslands að sinna ýmsum verkefnum.Fréttablaðið/Vilhelm
réttir Ríkið hefur með samningi, sem rennur út á næsta ári, falið Bændasamtökum Íslands að sinna ýmsum verkefnum.Fréttablaðið/Vilhelm

Bændasamtökin fá samkvæmt fjárlagafrumvarpi tæpan milljarð króna í tekjur frá ríkissjóði, annars vegar vegna samnings við ríkið og hins vegar vegna sjóða sem samtökin reka í umboði ríkisins og fá tekjur af gjöldum sem bændum er skylt að greiða samkvæmt lögum.

Bændur greiða 1,2 prósenta búnaðargjald af veltu búvöruframleiðslu sinnar. Gjaldið rennur í Búnaðarsjóð sem Bændasamtök Íslands varðveita. Úr þeim sjóði rennur gjaldið eftir ákveðnum reglum til ýmissa samtaka landbúnaðarins; bæði Bændasamtakanna sjálfra, búnaðarsambanda og búgreinasamtaka, auk Bjargráðasjóðs.

Fjárlagafrumvarp næsta árs áætlar að 320 milljónir innheimtist af búnaðargjaldi í Búnaðarsjóðinn. Það er sama fjárhæð og áætluð var á síðasta ári en talsvert hærri en 2008, þegar sjóðurinn fékk 277,4 milljónir króna til ráðstöfunar.

Bændasamtökin annast líka rekstur Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Hann fær 148 milljóna króna ríkisframlag á fjárlögum 2010, fékk 158,9 milljónir í fjárlögum 2009 en 100,3 milljónir árið 2008. Sjóðurinn á að styðja búháttabreytingar og efla ný viðfangsefni í landbúnaði.

Loks gerir fjárlagafrumvarpið ráð fyrir að ríkið greiði bændasamtökunum 521,4 milljónir króna samkvæmt samningi um tiltekin verkefni sem ríkið felur Bændasamtökunum að sinna á sinn kostnað. Þetta eru m.a. ráðgjafaþjónusta og markaðsverkefni, sem hafa aukna sölu landbúnaðarafurða að markmiði. Í fjárlagafrumvarpinu segir að 521,4 milljóna króna útgjöld næsta árs séu 117,2 milljónum króna lægri að raungildi en framlag þessa árs. Meðal annars á að spara 70 milljónir í ráðgjafaþjónustu og 30 milljónir í þróunar- og markaðsverkefnum.

Bændasamtökin fengu um 750 milljónir á þessu ári, samkvæmt samningum og ættu að fá 667,5 milljónir ef ekki kæmi til þessi skerðing.

Í samtölum Fréttablaðsins við Jóhann Guðmundsson, aðstoðarmann landbúnaðarráðherra, og Eirík Blöndal, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, kom fram að viðræður um endurnýjun samningsins voru hafnar þegar hrunið varð á síðasta ári. Þær hafa síðan legið að mestu niðri. Eiríkur kveðst vonast til að viðræður hefjist fljótlega á ný og kveðst þess fullviss að nýr samningur verði gerður.

peturg@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×