Icesave ekki úr fjárlaganefnd í bráð Jón Hákon Halldórssn skrifar 23. júlí 2009 10:54 Guðbjartur Hannesson segir að Icesave verði ekki tekið úr nefnd í dag eða á morgun.
Hugsanlegt er að Hagfræðistofnun Háskóla Íslands verði falið að gera úttekt á áætlunum Seðlabankans og fjármálaráðuneytisins um áhrif Icesave samningsins á íslenskt efnahagslíf. Málið var rætt á fundi fjárlaganefndar í morgun. Til stóð að stofnunin kæmi með tillögur á fundinn varðandi það hvernig úttektin yrði unnin. Þær tillögur voru hins vegar ekki tilbúnar þegar fundurinn hófst, að sögn Guðbjarts Hannessonar, formanns fjárlaganefndar. Málinu var frestað af þessum sökum. „Hluti af því sem menn hafa verið að skoða er greiðsluþol ríkisins, skuldastaða og framtíðarhorfur. Efnahags- og skattanefnd er náttúrlega búin að skila sínu áliti og þar meta þeir stöðuna," segir Guðbjartur. Stjórnarandstaðan hafi hins vegar óskað eftir því að málið yrði skoðað aðeins betur og það sé ekki hægt að segja fyrir um hvaða áhrif slík skoðun myndi hafa. „Það er ekki einu sinni búið að ákveða að við látum Hagfræðistofnun vinna þetta. Það fer eftir því hvaða tímarammi er á þessu, umfangið og kostnaðurinn," segir Guðbjartur. Hins vegar hafi komið ósk frá stjórnarandstöðunni um þessa endurskoðun og mikilvægt sé að menn fái þær upplýsingar sem þeir telja sig þurfa. „Við erum ekkert að taka málið úr nefnd í dag eða á morgun Við erum að fá nefndarálitin úr efnahags- og skattanefnd og sama gildir um utanríkisnefnd," segir Guðbjartur. Þá þufi að skoða minnihlutaálitin líka. Einnig þurfi að skoða lögfræðileg álitamál sem komu upp í framhaldi af skrifum Ragnars Hall.
Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Fleiri fréttir Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Sjá meira