Ástæða til að kanna hvort fleiri starfsmenn Stjórnarráðsins séu ráðnir ólöglega 5. janúar 2009 21:58 Valgerður Sverrisdóttir, formaður Framsóknarflokksins. „
Ég tel víst að Umboðsmaður sé með auga á þessum tímabundnu ráðningum og það kæmi mér ekki á óvart ef það ætti eftir að koma eitthvað fleira í ljós varðandi þær," segir Valgerður Sverrisdóttir, formaður Framsóknarflokksins. Valgerður spurði forsætisráðherra að því fyrir jól hversu margir starfsmenn Stjórnarráðsins hefðu væru ráðnir tímabundið í störf sín. Í svari ráðherra kom fram að þessar ráðningar skiptu tugum. Einn þeirra sem var ráðinn tímabundið er Björn Rúnar Guðmundsson. Hann var settur í embætti skrifstofustjóra á nýrri Efnahags- og alþjóðafjármálaskrifstofu ráðuneytisins þann 1. nóvember síðastliðinn. Starfið var ekki auglýst og komst Umboðsmaður Alþingis að þeirri niðurstöðu, í áliti sem gert var opinbert í síðustu viku, að ráðningin væri ólögmæt. Fjörtíu starfsmenn eru tímabundið ráðnir hjá Stjórnarráðinu, samkvæmt svari forsætisráðherra við fyrirspurn Valgerðar. Valgerður segist ekki þora að fullyrða neitt um það hvort hið sama eigi við um þær og ráðningu Björns Rúnars. „En það sem kom mér á óvart var hvað það er stór hópur sem fær tímabundnar ráðningar," segir Valgerður í samtali við Vísi. Hún segir að sér sýnist málið vera þannig vaxið að það sé ástæða til að fylgja því frekar eftir. Hún hyggst því taka málið upp aftur á vorþingi og fá þá upplýsingar um það hvort þær stöður sem var tímabundið ráðið í hafi verið auglýstar og hvaða einstaklingar hafi verið ráðnir í störfin. Valgerður segist jafnframt treysta Umboðsmanni til að fylgjast með þessu máli.
Tengdar fréttir Ráðning skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu ólögleg Forsætisráðuneytinu var óheimilt að setja Björn Rúnar Guðmundsson í embætti skrifstofustjóra á nýrri efnahags- og alþjóðafjármálaskrifstofu ráðuneytisins frá 1. Nóvember síðastliðnum, án þess að auglýsa starfið fyrst. Þetta kemur fram í áliti Umboðsmanns Alþingis. 30. desember 2008 17:47 Mest lesið Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Erlent Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi Innlent Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Erlent Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Innlent Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Innlent Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Innlent Trump segir Nielsen í vondum málum Erlent Trump sýndi verkamanni puttann Erlent Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark Innlent Kaus að styðja karlasamtök í stað lögreglu Innlent Fleiri fréttir Sögulegur fundur um framtíð Grænlands Tveir fulltrúar taka þátt í aukinni hernaðarviðveru Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar Kaus að styðja karlasamtök í stað lögreglu Ræddu undanþágu losunarheimilda Brutu stjórnsýslulög við útgáfu hvalveiðileyfis Jafnlaunavottunin verður lögð af á þessu ári Ljósvistarhönnuður hoppar hæð sína af gleði vegna breytinga Skoða dóma MDE í ráðuneyti og refsiréttarnefnd Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi „Látið undan þrýstingi stóru fyrirtækjanna í búvöruframleiðslu“ Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Bleikja strauk út í sjó úr landeldi Fundað um Grænland og Inga vill aðgreina eftir íslenskukunnáttu Dómur MDE hljóti að vera stjórnvöldum alvarlegt umhugsunarefni Á skilorði eftir að hafa kýlt, skallað og bitið konu sína Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark 90 prósentum landsmanna þótti skaupið gott Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Alþingi kemur saman í dag eftir jólafrí Vongóð um stuðning Miðflokksins Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Notað á Íslandi þrátt fyrir að hafa mistekist annars staðar Bláklukka bar þremur lömbum á bænum Viðvík í Skagafirði Borgin beri ábyrgð sem eigandi Grænlendingar hnykla vöðvana og altjón í Gufunesi Mál látins manns komið til ákærusviðs Fellur frá máli sínu á hendur Hödd Fjárlögin komi í veg fyrir fjölgun nemenda Sjá meira
Ráðning skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu ólögleg Forsætisráðuneytinu var óheimilt að setja Björn Rúnar Guðmundsson í embætti skrifstofustjóra á nýrri efnahags- og alþjóðafjármálaskrifstofu ráðuneytisins frá 1. Nóvember síðastliðnum, án þess að auglýsa starfið fyrst. Þetta kemur fram í áliti Umboðsmanns Alþingis. 30. desember 2008 17:47