Árás í Heiðmörk: Refsingu frestað 14. desember 2009 15:26 Heiðmörk. MYNDAnton
Héraðsdómur Reykjaness ákvað í dag að fresta dómi skilorðsbundið yfir þremur sautján ára gömlum stúlkum sem játuðu að hafa ráðist á fjórðu stúlkuna í Heiðmörk í apríl á þessu ári. Haldi stúlkurnar þriggja ára skilorð munu þær ekki þurfa að sæta refsingu vegna árásarinnar. Þær voru hinsvegar dæmdar til þess að greiða sakarkostnað í málinu, tæpar 32 þúsund krónur. Málið vakti mikla athygli þegar það kom upp á sínum tíma. Systir stúlkunnar sem ráðist var á lýsti hroðalegum líkamlegum sem andlegum áverkum sem stúlkan bar, eftir að ekið var með hana nauðuga frá heimili hennar upp í Heiðmörk og gengið þar í skrokk á henni.
Tengdar fréttir Getur ekki vikið stúlkunum úr skóla Stúlkurnar sem stóðu fyrir árásinni í Heiðmörk eru allar nemendur við Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Skólameistari Flensborgar segir málið hins vegar ekki í lögsögu skólans. Hann gæti ekki vikið stúlkunum úr skóla jafnvel þótt hann vildi. 2. maí 2009 06:45 Þrjár stúlkur játuðu árás í Heiðmörk Þrjár sautján ára stúlkur játuðu fyrir dómi í fyrradag að hafa ráðist á fjórðu stúlkuna í Heiðmörk í apríl á þessu ári. Vegna skýlausra játninga stúlknanna var málið í kjölfarið dómtekið og má búast við dómi á næstu vikum. 11. desember 2009 06:00 Sjö stúlkur börðu 15 ára stúlku í Heiðmörk Farið var með 15 ára stúlku í Heiðmörk í dag þar sem hún var barin illa. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru árásarmennirnir hópur sjö stúlkna á aldrinum 16 til 17 ára og höfðu tvær þeirra sig hvað mest frammi. Fórnarlamið var skilið eftir við verslunarmiðstöð í Hafnarfirði. Hjá lögreglu fengust þær upplýsingar að rannsókn málsins væri á frumstigi. 29. apríl 2009 20:32 Námu fimmtán ára stúlku á brott og börðu í Heiðmörk Fimmtán ára stúlka var göbbuð upp í bíl við heimili sitt í gær undir þeim formerkjum að hún væri að fara að sættast við stúlku sem hún hafði átt í útistöðum við. Fljótlega komu fimm aðrar stúlkur upp í bílinn, en þar voru tvær fyrir, og óku með hana upp í Heiðmörk. Þar gengu tvær þeirra í skrokk á henni svo stórsér á henni. 30. apríl 2009 04:00 Heiðmerkurhrottar kærðir í dag Stúlkurnar sem námu 15 ára stúlku á brott og börðu í Heiðmörk í gær verða kærðar í dag, segir Hrönn Óskarsdóttir, systir fórnarlambsins. Fjölskyldan hefur fengið afar sterk viðbrögð í kjölfar árásarinnar. 30. apríl 2009 09:51 Heiðmerkurhrottarnir ekki yfirheyrðir Allar stúlkurnar sem hafa verið kærðar fyrir að ganga í skrokk á fimmtán ára stúlku í Heiðmörk í gær gáfu sig fram við lögregluna í hádeginu. Þær fóru síðar án þess að skýrsla væri tekin af þeim. Þegar haft var samband við yfirlögregluþjóninn Friðrik Smára Björgvinsson sagði hann að málið myndi fara sömu leið og sakamál gegn lögráða einstaklingum, enda eru þær sakhæfar. Aftur á móti þarf að kalla til foreldri eða barnaverndaryfirvöld þegar skýrsla er tekin af ungmennum undir átján ára aldri. Fórnalamb stúlknanna er búið að kæra árásina. Skýrslutöku er nýlokið. Stúlkurnar gengu í skrokk á fimmtán ára stelpu í Heiðmörk í gær eftir að hafa lokkað hana upp í bíl. Ástæðan á að hafa verið sú að fórnarlambið á að hafa skrifað eitthvað á netið sem þeim mislíkaði. Samkvæmt heimildum Vísis höfðu tvær stúlkur sig mest frammi í málinu. Reynt var að hafa uppi á foreldrum stúlknanna án árangurs. Báðar stúlkurnar sem eiga að bera höfuðsökina eru nemar í Flensborg. 30. apríl 2009 15:31 „Mamma þurfti eiginlega áfallahjálp“ Systir 15 ára stúlku sem var misþyrmt í Heiðmörk í dag af sjö stúlkum segir að móðir sín hafi nánast þurft áfallahjálp eftir að hafa sótt yngstu dóttur sína illa farna af barsmíðum í Hafnarfjörð. „Mamma þurfti eiginlega áfallahjálp eftir að hafa séð hana hana," segir Hrönn Óskarsdóttir, 32 ára gömul systir stúlkunnar sem varð fyrir árásinni. 29. apríl 2009 21:58 Hafði áður ráðist á stelpuna Ein stúlknanna sem réðst að fimmtán ára gamalli stúlku með fólskulegum hætti og lamdi hana í Heiðmörk hefur áður ráðist að stelpunni og lamið hana. Það var fyrir tveimur vikum síðan. Þetta staðfestir Hrönn Óskarsdóttir, systir árásarþolans, í samtali við fréttastofu. 30. apríl 2009 21:58 Rannsókn lögreglu á Heiðmerkurárás lokið Rannsókn lögreglunnnar á fólskulegri árás á unga stúlku í Heiðmörk er lokið og tekin verður ákvörðun um framhald málsins innan skamms, segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík. 26. maí 2009 14:32 Mest lesið Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Innlent Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Erlent Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Innlent Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Innlent Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Innlent Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Innlent Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Erlent Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Innlent Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Erlent Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Innlent Fleiri fréttir Tvö vilja byggja Fossvogsbrú en bæði yfir áætluðum kostnaði Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Ekki sama manneskjan eftir hörmungarnar á Gasa Skorar á ríkisstjórnina að fjármagna íslenskunám Eggert Benedikt settur forstjóri Hafró Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Rafmagnslaust á Dalvík, Hrísey og nágrenni Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Bjóða Grindvíkingum á seiglunámskeið Fimmtungur getur ekki keypt afmælisgjafir fyrir börnin sín Reyna að bjarga starfseminni á Möltu og slæmar fregnir af makrílveiðinni Bein útsending: Loftslagsdagurinn Bein útsending: Staða launafólks á Íslandi Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Konur og háskólamenntaðir líklegri til að vilja frekari aðgerðir gegn Ísrael Bein útsending: Heilbrigðistæknilausnir og -þjónusta Biskup Íslands heimsækir Úkraínu Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Útköll vegna slagsmála Þurftu að finna lausn á uppskáldaðri hryðjuverkaárás á Íslandi Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Ísland land númer 197 Skiptastjóri þurfi að ákveða hvort hann geri kröfu í dótturfélag Play Fjöldauppsagnir á Keflavíkurflugvelli Gjaldþrotið leiðir til hópuppsagnar og afarkostir Bandaríkjaforseta Fyrrum meðferðarheimili sett á sölu Strandaglópar slaga í tuttugu þúsund Sultuslakir strandaglópar eftir heilsuferð til Split Kallar þjóðaröryggisráð saman Sjá meira
Getur ekki vikið stúlkunum úr skóla Stúlkurnar sem stóðu fyrir árásinni í Heiðmörk eru allar nemendur við Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Skólameistari Flensborgar segir málið hins vegar ekki í lögsögu skólans. Hann gæti ekki vikið stúlkunum úr skóla jafnvel þótt hann vildi. 2. maí 2009 06:45
Þrjár stúlkur játuðu árás í Heiðmörk Þrjár sautján ára stúlkur játuðu fyrir dómi í fyrradag að hafa ráðist á fjórðu stúlkuna í Heiðmörk í apríl á þessu ári. Vegna skýlausra játninga stúlknanna var málið í kjölfarið dómtekið og má búast við dómi á næstu vikum. 11. desember 2009 06:00
Sjö stúlkur börðu 15 ára stúlku í Heiðmörk Farið var með 15 ára stúlku í Heiðmörk í dag þar sem hún var barin illa. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru árásarmennirnir hópur sjö stúlkna á aldrinum 16 til 17 ára og höfðu tvær þeirra sig hvað mest frammi. Fórnarlamið var skilið eftir við verslunarmiðstöð í Hafnarfirði. Hjá lögreglu fengust þær upplýsingar að rannsókn málsins væri á frumstigi. 29. apríl 2009 20:32
Námu fimmtán ára stúlku á brott og börðu í Heiðmörk Fimmtán ára stúlka var göbbuð upp í bíl við heimili sitt í gær undir þeim formerkjum að hún væri að fara að sættast við stúlku sem hún hafði átt í útistöðum við. Fljótlega komu fimm aðrar stúlkur upp í bílinn, en þar voru tvær fyrir, og óku með hana upp í Heiðmörk. Þar gengu tvær þeirra í skrokk á henni svo stórsér á henni. 30. apríl 2009 04:00
Heiðmerkurhrottar kærðir í dag Stúlkurnar sem námu 15 ára stúlku á brott og börðu í Heiðmörk í gær verða kærðar í dag, segir Hrönn Óskarsdóttir, systir fórnarlambsins. Fjölskyldan hefur fengið afar sterk viðbrögð í kjölfar árásarinnar. 30. apríl 2009 09:51
Heiðmerkurhrottarnir ekki yfirheyrðir Allar stúlkurnar sem hafa verið kærðar fyrir að ganga í skrokk á fimmtán ára stúlku í Heiðmörk í gær gáfu sig fram við lögregluna í hádeginu. Þær fóru síðar án þess að skýrsla væri tekin af þeim. Þegar haft var samband við yfirlögregluþjóninn Friðrik Smára Björgvinsson sagði hann að málið myndi fara sömu leið og sakamál gegn lögráða einstaklingum, enda eru þær sakhæfar. Aftur á móti þarf að kalla til foreldri eða barnaverndaryfirvöld þegar skýrsla er tekin af ungmennum undir átján ára aldri. Fórnalamb stúlknanna er búið að kæra árásina. Skýrslutöku er nýlokið. Stúlkurnar gengu í skrokk á fimmtán ára stelpu í Heiðmörk í gær eftir að hafa lokkað hana upp í bíl. Ástæðan á að hafa verið sú að fórnarlambið á að hafa skrifað eitthvað á netið sem þeim mislíkaði. Samkvæmt heimildum Vísis höfðu tvær stúlkur sig mest frammi í málinu. Reynt var að hafa uppi á foreldrum stúlknanna án árangurs. Báðar stúlkurnar sem eiga að bera höfuðsökina eru nemar í Flensborg. 30. apríl 2009 15:31
„Mamma þurfti eiginlega áfallahjálp“ Systir 15 ára stúlku sem var misþyrmt í Heiðmörk í dag af sjö stúlkum segir að móðir sín hafi nánast þurft áfallahjálp eftir að hafa sótt yngstu dóttur sína illa farna af barsmíðum í Hafnarfjörð. „Mamma þurfti eiginlega áfallahjálp eftir að hafa séð hana hana," segir Hrönn Óskarsdóttir, 32 ára gömul systir stúlkunnar sem varð fyrir árásinni. 29. apríl 2009 21:58
Hafði áður ráðist á stelpuna Ein stúlknanna sem réðst að fimmtán ára gamalli stúlku með fólskulegum hætti og lamdi hana í Heiðmörk hefur áður ráðist að stelpunni og lamið hana. Það var fyrir tveimur vikum síðan. Þetta staðfestir Hrönn Óskarsdóttir, systir árásarþolans, í samtali við fréttastofu. 30. apríl 2009 21:58
Rannsókn lögreglu á Heiðmerkurárás lokið Rannsókn lögreglunnnar á fólskulegri árás á unga stúlku í Heiðmörk er lokið og tekin verður ákvörðun um framhald málsins innan skamms, segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík. 26. maí 2009 14:32