Innlent

Fimm innbrot tilkynnt í gær og í nótt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fimm innbrot voru framin í nótt. Myndin er úr safni. Mynd/ Pjetur.
Fimm innbrot voru framin í nótt. Myndin er úr safni. Mynd/ Pjetur.
Fimm innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt.

Tvö fyrirtæki í Breiðholti urðu fyrir barðinu á innbrotsþjófum en einhverju af peningum var stolið úr öðru þeirra. Þjófur var líka á ferðinni í húsi í Grafarholti og hafði tekið til ýmsa muni þegar að honum kom styggð en hann fór tómhentur af vettvangi. Í Garðabæ var brotist inn í vinnuskúr en ekki er ljóst hvort einhverju var stolið. Þá var sjónauki tekinn úr bíl í miðborginni.

Þá var kona um fimmtugt tekin í gær fyrir að stela snyrtivörum í verslun í Kringlunni. Í annarri verslun í borginni var kona á sjötugsaldri líka gripin glóðvolg við vafasama iðju en sú hafði tekið nokkuð af jólaskrauti ófrjálsri hendi. Og í Hafnarfirði var dekkjaþjófur á kreiki en bíll í bænum var tjakkaður upp og undan honum tekið eitt dekk. Þjófnaðurinn uppgötvaðist þegar eigandi bílsins kom grunlaus á vettvang, settist í ökumannssætið og hugðist aka bílnum. Eins og við var að búast komst hann ekki langt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×