Nýr framherji við hlið Cristiano Ronaldo í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. september 2009 15:30 Liedson skorar hér jöfnunarmark sitt á móti Dönum. Mynd/AFP
Það er mikið undir hjá portúgalska landsliðinu í kvöld því mega alls ekki tapa á móti Ungverjum ef liðið ætlar að eiga einhverja raunhæfa möguleika á að komast á HM í Suður-Afríku. Portúgalar eru sem stendur í 4. sæti síns riðils, sjö stigum á eftir Dönum (1. sæti) og þremur stigum á eftir Ungverjum (2. sæti). Tapi Portúgalar í Ungverjalandi í kvöld verða þeir sex stigum á eftir Ungverjum þegar aðeins sex stig eru eftir pottinum. Carlos Queiroz, þjálfari portúgalska landsliðsins, hefur samkvæmt heimildum portúgalska blaðsins A Bola ákveðið að skipta um framherja við hlið Cristiano Ronaldo. Simao Sabrosa hefur verið að spila þessa stöðu í undankeppninni til þessa en hann hefur verið færður niður á miðjuna. Þess í stað verður Liedson, framherji Sporting, við hlið Ronaldo. Liedson kom inn á sem varamaður í hálfleik í sínum fyrsta landsleik á móti Dönum um síðustu helgi og tryggði Portúgölum stig með því að skora jöfnunarmark leiksins á 86. mínútu. Tiago Mendes dettur út í liðinu fyrir Liedson og Simao Sabrosa tekur stöðu hans á miðjunni þar sem hann mun spila með þeim Deco og Raul Meireles (Porto). Liedson da Silva Muniz er 31 árs gamall og fæddur í Brasilíu. Hann hefur skorað 98 mörk í 172 leikjum með Sporting Clube de Portugal frá 2003. Hann kom til Portúgals frá brasilíska liðinu Corinthians.
Mest lesið Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Fótbolti „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Fótbolti Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Íslenski boltinn Þór Ak. - KR | Tapar KR aftur fyrir nýliðum? Íslenski boltinn Hvað er að gerast hjá Manchester United? Enski boltinn Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti Fleiri fréttir Mikael snýr aftur til AGF vegna fjölskyldunnar Þór Ak. - KR | Tapar KR aftur fyrir nýliðum? HM-þjálfari kvaddi með maraþonblaðamannafundi Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Ekki hrifinn af því að spila í bakverði Forseti Grænhöfðaeyja: „Við getum unnið Argentínu 1-0“ Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Stuðningsmennirnir skapað mikinn áhuga á víkingaöldinni Forveri Freys tekur við af honum Hlín er nýja nían hjá Malmö í Svíþjóð Hvað er að gerast hjá Manchester United? Maður dagsins á HM: Harry Kane hoppaði upp fyrir Pelé Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum „Leyfið börnunum að vaka“ Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Skoraði mikilvægt mark fyrir Bandaríkjamenn en fékk svo rautt spjald Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Skilur eftir minningar alveg eins og leikurinn Þórir til nýliða í ítölsku úrvalsdeildinni Tuchel um hetjuna Kane: „Það sem hann býst við af sjálfum sér“ Kane bjargaði enskum Slæmur skellur gegn Spáni en mun betri seinni hálfleikur „Ég er farinn“ Ungstirnið í Breiðablik keypt til Danmerkur Rooney vill að Mainoo byrji hjá Englandi frekar en Anderson Sjá meira