Þrettán ára stúlka ók 185 kílómetra í svefni 23. júlí 2009 07:00 svefn Oftast gengur fólk í svefni í um fimm til tíu mínútur, að sögn sálfræðings. Ólíklegt er að hægt sé að ganga í nokkrar klukkustundir í senn. fréttablaðið/getty
Þrettán ára stúlka, sem tók jeppabifreið ófrjálsri hendi í Húsafelli aðfaranótt miðvikudags, telur sig hafa ekið bifreiðinni í svefni alla leið frá Húsafelli til Keflavíkur eða 185 kílómetra. Endaði förin á því að hún keyrði út í kant. Stúlkan dvaldi í sumarhúsi í Húsafelli, fór yfir í annað sumarhús og tók jeppann. Skildi hún eftir kveðjuna: „Flott hús. Kveðja, næturröltarinn.“ Málið er enn til rannsóknar hjá lögreglunni í Borgarnesi. Júlíus K. Björnsson, sálfræðingur og forstöðumaður Námsmatsstofnunar, sem vann við mál tengd svefntruflunum hjá Landspítalanum í 15 ár, segir þetta mál stórundarlegt. „Að þetta ástand standi í nokkra klukkutíma gengur engan veginn. Oftast eru þetta einhverjar fimm til tíu mínútur.“ Sofi manneskja eðlilega fer hún í gegnum nokkur svefnstig og skiptist á djúpur svefn og draumsvefn. Hver hringur tekur um 90 mínútur. Svefnganga á sér venjulega stað fyrri part nætur. „Ef hún hefur sofið eðlilega þá hefði hún líklega keyrt út af þegar hún hefði farið í draumsvefn. Ég veit hins vegar ekkert um tilvik ið og það gæti verið að hún fái bara djúpan svefn. Ég á þó afar bágt með að trúa því,“ segir Júlíus. Guðrún Guðmundsdóttir, móðir 29 ára gamallar konu sem gekk mikið í svefni á yngri árum, segir mögulegt að þessi saga geti verið sönn. Þó sé það ólíklegt ef stelpan á enga forsögu um svefngöngu. Nokkrum sinnum kom fyrir að dóttir hennar gekk í svefni en ekkert hafi jafnast á við þetta: „Einu sinni þurfti ég að fara út á land og systir hennar passaði hana. Síminn hringdi um miðja nótt og þá höfðu hjón fundið hana úti. Þau spurðu hana hvað hún væri að gera og hún sagðist vera að leika sér. Fólkið átti heima rétt hjá okkur og könnuðust við okkur og fóru því með hana heim til sín og gáfu henni kakó og brauð. Síðan ákváðu þau að hringja og athuga hvað væri í gangi. Hin dóttir mín svaraði og sagði þeim að systir sín væri líklega sofandi. Þá hafði þetta varað í þrjár til fjórar klukkustundir og hún mundi ekkert,“ segir Guðrún. Svefngangan hætti smám saman en stundum gengur hún enn í svefni. „Eiginmaður hennar sagði mér að hún gengi stundum í svefni þegar hún er undir álagi. Þá er það yfirleitt bara fram á gang og stendur stutt yfir,“ segir Guðrún. vidirp@frettabladid.is
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fleiri fréttir „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Sjá meira