Terry Butcher, aðstoðarlandsliðsþjálfari Skota, sagði að Hollendingar hafi verið mun klókari á vellinum í leiknum gegn Skotum um helgina. Þeir þurfi nú að vera klókari aðilinn gegn Íslandi á morgun.
„Jafnvel þótt að leikmenn Hollands eru gríðarlega leikreyndir og hæfileikaríkir voru þeir mjög klókir í sínum varnaraðgerðum.
Þeir hindruðu okkur þegar Robin van Persie skoraði sitt mark - þá var Klaas-Jan Huntelaar að hindra Gary Naysmith og Dirk Kuyt var á markverðinum. Við verðum að vera klókari aðilinn gegn Íslandi," sagði Butcher.