Framherjaálög á enska landsliðinu - Bent meiddist Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2009 13:15 Darren Bent útskýrir meiðslin sín fyrir Fabio Capello. Mynd/GettyImages
Enska landsliðið er búið að missa enn einn framherjann í meiðsli eftir að ljóst var að Darren Bent getur ekki tekið þátt í leiknum á móti Úkraínu í undankeppni HM á morgun. Fabio Capello, þjálfari enska landsliðsins, hefur valið Gabriel Agbonlahor í hans stað. Darren Bent kom inn í enska hópinn eftir vináttulandsleikinn á móti Slóvakíu um helgina en í þeim leik meiddust bæði Emile Heskey og Carlton Cole. Bent meiddist síðan á hné á fyrstu æfingunni sinn í gær. „Hann fann fyrir frekari verkjum í upphitun í morgun og hætti á æfingunni. Ég hef kallað á Agbonlahor en ég ætla að byrja með Peter Crouch einan frammi," sagði Fabio Capello. Það mætti halda að það séu einhver framherjaálög á enska landsliðinu. Emile Heskey meiddist eftir aðeins fimmtán mínútna leik á móti Slóvökum. Carlton Cole kom inn fyrir hann en tognaði á vöðva eftir 34 mínútur og á endanum fór varamaður hans, Peter Crouch, einnig haltrandi útaf. Meiðsli Crouch voru ekki alvarlega og hann verður með á móti Úkraínu.
Enski boltinn Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Sjá meira