Evrópusambandið hvetur til 30 prósenta samdráttar 16. desember 2009 03:30 vilja samræmt markmið Andreas Calgren, umhverfisráðhera Svíþjóðar, og Stavros Dimas, framkvæmdastjóri loftslagsmála hjá ESB, lögðu áherslu að markmið allra iðnríkjanna þyrftu að vera sameiginleg.fréttablaðið/kóp „
Hvernig er hægt að hafa mismunandi samninga um útblástur í þróuðu ríkjunum sem stýrast af pólitík?“ Svo spurði Stavros Dimas, framkvæmdastjóri umhverfismála hjá Evrópusambandinu, á blaðamannafundi í gær. Það duldist engum að hann beindi spjótum sínum að Bandaríkjunum og hann fórnaði höndum um leið og dæsti. Slík þreytumerki eru farin að sjást á ýmsum fulltrúum hér, en allt er enn á huldu með samninga. Tillögur Evrópusambandsins eru mjög metnaðarfullar, en lagt er til að iðnríkin dragi úr útblæstri sínum um 30 prósent árið 2020, miðað við árið 1990. Sambandið hefur einhliða skuldbundið sig til að draga úr útblæstri um 20 prósent, en er tilbúið að fara í 30 prósent ef tekst að semja þar um. Þá vill sambandið að þróunarríki dragi að meðaltali úr útblæstri um fimmtán til þrjátíu prósent á sama tíma. Andreas Calgren, umhverfisráðherra Svíþjóðar, en Svíar eru í forsæti Evrópusambandsins, sagði aðspurður að sambandið mundi ekki vera tilbúið að ganga lengra en uppgefin tuttugu prósent einhliða. Nota þyrfti þau auka tíu prósent, sem sambandið er tilbúið til að bæta við, til samninga og að beita önnur ríki þrýstingi. Annars væri verið að selja þennan aukaniðurskurð ódýrt. Hann minnti á að lagasetning Evrópusambandsins hefði undanfarinn áratug tekið mið af Kyoto-bókuninni. Nú vildi sambandið ganga lengra. Evrópusambandið hefur lagt mikla áherslu á að sömu reglur gildi um öll iðnríki. Svo er ekki nú, þar sem Bandaríkin og fleiri ríki hafa neitað að staðfesta Kyoto. Þá hefur sambandið lagt til að farið sé hratt í breytingar. Náist samkomulag hér í Kaupmannahöfn, hefjist löndin handa þegar í stað við að draga úr losun. Komið verði á fót sjóði til að styðja ríki strax af stað í því skyni. Tillögur Evrópusambandsins gera einnig ráð fyrir að árið 2020 hafi minnkun regnskóga dregist saman um helming og algjörlega stöðvast í síðasta lagi tíu árum síðar.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Sjá meira