Innlent

Fjárreiður Álftaness á borði ríkisstjórnar

Vonlítil fjárhagsstaða sveitarfélagsins Álftaness er á dagskrá fundar ríkisstjórnarinnar í dag.

Skýrsla sem eftirlitsnefnd með fjárreiðum sveitarfélaga gerði um fjármál Álftaness var tilbúin 7. desember. Samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytið hafnaði því í gær að afhenda afrit skýrslunnar.

„Skýrsla um stöðu fjármála sveitarfélagsins Álftaness verður gerð opinber í kjölfar fundar ríkisstjórnarinnar á morgun en þar ráðgerir samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að kynna fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og þau úrræði sem hugsanlega verður gripið til í því skyni að aðstoða sveitarfélagið," svaraði ráðuneytið. Kristján L. Möller ráðherra sagði málið enn í vinnslu. Hann myndi tjá sig um það síðar.

Skuldir Álftaness eru um 6,5 milljarðar króna. Sú upphæð er um fimmfaldar árstekjur bæjarsjóðs. Afar þung í skauti er ný sundlaug sem bærinn þarf að borga yfir 200 milljónir króna í leigu fyrir á næsta ári þrátt fyrir að nú hafi náðst að semja um lækkun leigunnar.

Pálmi Másson bæjarstjóri sagði í gær að skýrslan hefði verið afhent bæjarstjórninni í trúnaði. Efni hennar var rætt á fundi stjórnar Sambands sveitarfélaga á föstudag og á bæjarráðsfundi á Álftanesi á fimmtudag.

Til greina kemur að álögur á íbúa Álftaness verði hækkaðar tímabundið um 25 prósent og að Álftanes fái styrk úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Sameining við önnur sveitarfélög er líka valkostur.

Einnig er mögulegt að ráðuneytið taki síðar yfir fjármál sveitarfélagsins því ljóst sé að ekki rætist úr þeim í bráð og að sveitarstjórnin hafi vanrækt svo skyldur sínar að vandræði hafi af hlotist, fjármálastjórnin verið í ólestri og aðrar ráðstafanir muni ekki duga.

- gar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×