Fimmtán stiga forysta Barcelona Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. janúar 2009 20:48 Gerard Pique, Samuel Eto'o og Thierry Henry fagna einu marka Börsunga í dag. Nordic Photos / AFP
Barcelona er með fimmtán stiga forystu á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir að liðið slátraði enn einum andstæðingnum. Í dag var röðin komin að Deportivo. Eiður Smári Guðjohnsen var á varamannabekk Barcelona en Pep Guardiola, stjóri Barcelona, notaði aðeins eina skiptingu í leiknum. Lionel Messi og Thierry Henry voru búnir að koma Börsungum í 2-0 eftir 27 mínútna leik og Samuel Eto'o bætti því þriðja við á 41. mínútu. Thierry Henry skoraði svo fjórða markið á 82. mínútu og Eto'o því fimmta á þeirri 87. en það mark kom úr víti. Vítið var dæmt á Aranzubia, markvörð Deportivo, fyrir að brjóta á varnarmanninum Carles Puyol sem hafði stormað upp allan völlinn og brotið sér leið í gegnum vörn Deportivo. Aranzubia fékk að líta rauða spjaldið fyrir brotið og þar sem Deportivo var búið að nota allar þrjár skiptingar sínar í leiknum fór útileikmaðurinn Juan Rodriguez í markið. Hann kom engum vörnum við í vítinu. Þetta var fyrsti leikurinn í nítjándu umferð deildarinnar og er Barcelona nú með fimmtán stiga forystu á bæði Real Madrid og Sevilla á toppnum. Liðið hefur unnið sextán leiki og gert aðeins tvö jafntefli síðan liðið tapaði óvænt fyrir nýliðum Numancia í fyrstu umferð tímabilsins. Barcelona hefur skorað 59 mörk, átján mörkum meira en Atletico Madrid og 21 marki meira en Real Madrid. Liðið hefur þar að auki aðeins fengið á sig þrettán mörk á tímabilinu og er eina liðið ásamt Sevilla (16) sem hefur fengið á sig færri en 20 mörk til þessa. Real Madrid hefur fengið á sig tvöfalt fleiri mörk.
Mest lesið Hættur aðeins þrítugur Golf Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund Fótbolti Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Fleiri fréttir Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni „Allir virðast elska hann“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Freyr himinlifandi með íslensku strákana Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Sjá meira