Umferðareftirliti lítið sinnt vegna fámennis hjá lögreglu vidir@frettabladid.is skrifar 24. júlí 2009 03:15 Arinbjörn Snorrason „
Ég furða mig á orðum dómsmálaráðherra og þetta eru mikil vonbrigði. Við erum búin að biðla til ríkisstjórnarinnar í langan tíma um að koma til móts við okkur með því að draga niðurskurðinn til baka," segir Arinbjörn Snorrason, formaður Lögreglufélags Reykjavíkur, um orð Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra í Fréttablaðinu í gær. Sagði Ragna að ekki kæmi til greina að sækja eftir aukafjárveitingu fyrir lögregluna. Skera á niður um 57,1 milljón króna og eru lögreglumenn ósáttir við niðurskurðinn. „Glæpaheimurinn verður harðari á meðan verið er að skera niður. Hegningarlagabrotum fjölgar mikið og við erum færri til að vinna frumkvæðiseftirlit svo því er mjög lítið sinnt. Þetta er nánast að verða útkallslögregla," segir Arinbjörn. Hegningarlagabrotum hefur fjölgað mikið á þessu ári. Til dæmis hefur innbrotum fjölgað um 78 prósent á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við árið í fyrra. Upplýstum brotum vegna frumkvæðiseftirlits lögreglu, eins og umferðarlagabrotum, fækkar hins vegar töluvert. Arinbjörn segir afskipti, til dæmis af ölvunarakstri, töluvert færri nú en áður þar sem lögreglan hafi ekki bolmagn til þess að sinna þeirri skyldu. Síðan eru laun lögreglunnar það lág nú þegar, að mati Arinbjarnar, að yngra fólk úr stéttinni leitar annað. „Við erum að heyra það núna að launin séu það lág hjá þeim sem koma ný inn í þetta að þau hugi að námi í haust og það sé alveg eins gott að vera á námslánum," segir Arinbjörn. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður allsherjarnefndar Alþingis, segir að hugsa þurfi skipan lögreglumála á nýtt. Lagði hún til á fundi nefndarinnar í gær að dómsmálaráðherra og fulltrúar frá lögreglunni yrðu fengnir á fund á næstunni. „Ég hef verið þeirrar skoðunar lengi að það þurfi að efla lögregluna og hugsa skipan hennar upp á nýtt," segir Steinunn en hún sagði á þingi í gær að taka þyrfti þessi mál alvarlega. Atli Gíslason, þingmaður VG, og Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem báðir eru fulltrúar í allsherjarnefnd, tóku undir með Steinunni Valdísi.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Sjá meira