Fótbolti

Tap í fyrsta leik hjá Eddu og Ólínu - fengu báðar gult

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Edda og Ólína syngja þjóðsönginn fyrir einn landsleikinn.
Edda og Ólína syngja þjóðsönginn fyrir einn landsleikinn. Mynd/Daníel

Örebro, lið Eddu Garðarsdóttur og Ólínu Guðbjargar Viðarsdóttur, tapaði 0-2 fyrir Svíþjóðarmeisturum Umeå í opnunarleik sænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Leikurinn fór fram á heimavelli Umeå.

Edda og Ólína voru í byrjunarliði Örebro og spiluðu báðar allan leikinn. Þær nældu sér báðar í gult spjald, Ólína fékk sitt spjald á 50. mínútu en Edda fékk sitt spjald á síðustu mínútu leiksins.

Madalaine Edlund skoraði bæði mörk meistaranna í leiknum, það fyrra kom á 28. mínútu og það seinna skoraði hún á 72. mínútu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×