Pétur: Rökréttur sigur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. júní 2008 21:36 Pétur Marteinsson verst hér Heiðari Geir Júlíussyni í leik KR og Fram í kvöld.
Pétur Marteinsson átti skínandi góðan leik fyrir KR sem vann Fram, 2-0, á KR-vellinum í kvöld. Pétur hefur átt við meiðsli að stríða og ekkert verið í leikmannahópi til þessa á tímabilinu. En hann kom inn í vörn liðsins í stað Gunnlaugs Jónssonar sem tók út leikbann og Pétur átti prýðisgóðan leik. „Fyrir viku síðan leit ekki út fyrir að ég myndi spila hér í dag. Ég hef ekki æft með liðinu í einn og hálfan mánuð en það var ljómandi gott að fá tækifærið fyrst Gulli gat ekki spilað í dag," sagði Pétur í samtali við Vísi eftir leik. „En ef ég á að vera heiðarlegur þarf ég að taka fram að ég er ekki orðinn 100 prósent klár. Ég þarf einhverja daga og vikur til að tjasla mér saman og koma mér í form." Pétur vildi lítið segja um hvort að leikurinn í kvöld hafi verið hans besti síðan hann gekk til liðs við KR fyrir síðasta tímabil. „Þegar illa gengur eru menn oft fljótir að gleyma góðu leikjunum og skella skuldinni á aðra. En ég vil ekki dvelja við fortíðina og vil frekar horfa fram á við. Ég vil koma mér í betra form og eiga þátt í góðu tímabili með KR." Framarar spiluðu einnig vel í leiknum en KR-ingar áttu þó tvímælalaust sigurinn skilið. Hann er sá fyrsti síðan að KR vann Grindavík í fyrstu umferð mótsins. Spurður hvort að leikurinn hafi verið sá besti hjá KR til þessa í sumar segir Pétur að málið sé ekki svo einfalt. „Mér fannst að mörgu leyti leikurinn á móti Grindavík vera allt í lagi miðað við að það var fyrsti leikur mótsins." „Við erum svo með tögl og haldir á leiknum á móti Fjölni en töpum honum á síðustu mínútunni. Gegn Breiðablik áttum við ljómandi góðan síðari hálfleik og við byrjuðum mjög vel á móti FH. Sigurinn í kvöld var því rökrétt framhald á því sem hefur verið að gerast að undanförnu. Nú er vonandi að við höldum dampi og verðum bara betri og betri." „Það verður líka að taka fram að veturinn hjá KR var öðruvísi en hjá flestum öðrum liðum," bætti Pétur við. „Við vorum meira og minna í hlaup- og styrktaræfingum og öðru þess háttar. Við vorum minnst af öllum öðrum liðum deildarinnar í fótbolta. Þannig að ég vona að við séum að ná í afturendann á hinum liðunum og siglum svo fram úr. Það er draumurinn."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Undrandi á skrýtinni stöðu: „Þetta er bara ekki að virka“ Handbolti „Hef verið í handbolta í þúsund ár en hef aldrei séð neitt þessu líkt“ Handbolti Alfreð tekur á sig sökina: Gagnrýndur óbeint af leikmanni Handbolti Stærsta stund strákanna okkar Handbolti Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Enski boltinn Andri einn og yfirgefinn: „Held ég hafi sloppið“ Handbolti Stór mistök Alfreðs reyndust Þjóðverjum dýrkeypt Handbolti Fá martraðir um Tryggva eftir leik kvöldsins Körfubolti Pólland - Ísland | Pólverjar í sárum bíða okkar manna Handbolti Króatar Dags lentu í kröppum dansi í fyrsta leik á EM Handbolti Fleiri fréttir Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Svekktur að fá ekki leyfi til að taka við ÍBV Alfreð hættur hjá Breiðabliki Skipulagsbreytingar á skrifstofu KSÍ Nýliðarnir fá bandarískan markvörð Júlíus sagður á förum frá KR til Noregs Vestri opnar knattspyrnuakademíu í Senegal Sjá meira