Ólafur hefur notað 45 leikmenn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. maí 2008 11:53 Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari og Pétur Pétursson aðstoðarmaður hans á leiknum í gær. Mynd/Vilhelm
Þó svo að Ólafur Jóhannesson hafi aðeins verið í rúmt hálft ár í starfi landsliðsþjálfara hefur hann notað 45 leikmenn í þeim sjö leikjum sem hann hefur stýrt til þessa. Ólafur tók við landsliðinu af Eyjólfi Sverrissyni í október síðastliðnum en hann fyrsti leikur sem landsliðsþjálfari var gegn Dönum í lokaumferð undankeppni EM 2008. Síðan þá hefur hann stýrt liðinu í sex vináttu- og æfingaleikjum. Alls hefur hann valið fimm landsliðshópa og samtals 48 leikmenn. Aðeins þrír þeirra fengu ekki tækifæri hjá Ólafi sem þýðir að hann notaði alls 45 leikmenn í leikjunum sjö. Ólafur og Pétur Pétursson, aðstoðarþjálfari hans, hafa sagt að þeir vilji vera með sem flesta leikmenn á sínum snærum sem geta komið inn í landsliðshópinn fyrirvaralítið en engu að síður vitað hvaða hlutverki þeir eigi að gegna. Pétur sagði eftir leikinn gegn Wales í gær að leikurinn hafi verið mjög gagnlegur til þess. Leikmenn hafi sinnt sínum hlutverkum vel, líka þeir sem komu inn með stuttum fyrirvara en fjórir varnarmenn forfölluðust síðustu dagana fyrir leikinn. Vináttulandsleikirnir í vetur og vor hafa flestir ekki verið á alþjóðlegum landsleikjadegi og hafa því margir atvinnumanna Íslands í knattspyrnu ekki getað tekið þátt. Ólafur hefur því verið iðinn við að velja leikmenn sem leika með íslensku liðum í þessa leiki. Tveir leikmenn hafa komið við sögu í sex leikjum af þeim sjö sem Ólafur hefur stýrt. Það er Valsarinn Atli Sveinn Þórarinsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leikmaður Vålerenga í Noregi. Valsararnir og varnarmennirnir Atli Sveinn og Birkir Már Sævarsson hafa oftast verið í byrjunarliðinu, fimm talsins. Atli á flestar mínútur að baki eða 474 talsins. Enginn einn leikmaður hefur verið valinn í alla fimm landsliðshópa Ólafs. Til samanburðar má nefna að Eyjólfur Sverrisson var landsliðsþjálfari í tvö ár. Hann valdi níu landsliðshópa og stýrði liðinu í fjórtán leikjum. Í þeim leikjum notaði hann 37 leikmenn. Flestar mínútur hjá Ólafi: 1. Atli Sveinn Þórarinsson 474 mínútur 2. Birkir Már Sævarsson 450 3. Stefán Gíslason 377 4. Gunnar Heiðar Þorvaldsson 357 5. Aron Einar Gunnarsson 337 6. Kjartan Sturluson 315 6. Ragnar Sigurðsson 315 8. Bjarni Ólafur Eiríksson 279 9. Bjarni Guðjónsson 278 10. Tryggvi Guðmundsson 261 Oftast í landsliðshópnum (4 sinnum): Aron Einar Gunnarsson Atli Sveinn Þórarinsson Emil Hallfreðsson Gunnar Heiðar Þorvaldsson Jónas Guðni Sævarsson Kjartan Sturluson Theodór Elmar Bjarnason Oftast í byrjunarliðinu: 1. Atli Sveinn Þórarinsson 5 sinnum 1. Birkir Már Sævarsson 5 3. Aron Einar Gunnarsson 4 3. Gunnar Heiðar Þorvaldsson 4 3. Kjartan Sturluson 4 3. Ragnar Sigurðsson 4 3. Stefán Gíslason 4 8. Bjarni Guðjónsson 3 8. Bjarni Ólafur Eiríksson 3 8. Emil Hallfreðsson 3 8. Kristján Örn Sigurðsson 3 8. Theodór Elmar Bjarnason 3 8. Tryggvi Guðmundsson 3 Fengu ekki tækifæri:Arnar Þór Viðarsson (1 sinni í hópnum) Ármann Smári Björnsson (1 sinni í hópnum) Daði Lárusson (1 sinni í hópnum)
Fótbolti Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Sjá meira