Chelsea lögsækir Lyn vegna John Obi Mikel Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. október 2008 11:44 John Obi Mikel með þjálfara sínum, Luiz Felipe Scolari. Nordic Photos / AFP
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur ákveðið að lögsækja norska úrvalsdeildarfélagið Lyn og krefjast að félagið fái aftur þær sextán milljónir punda sem það greiddi fyrir John Obi Mikel á sínum tíma. Félagaskipti hans í júní árið 2006 komust í heimsfréttirnar þar sem að Lyn virtist hafa samið við Manchester United um félagaskipti þeirra á milli. Leikmaðurinn sjálfur vildi hins vegar fara til Chelsea sem varð svo raunin. Að lokum var samið um greiðslur á milli félaganna þriggja og um leið samþykktu þau að grípa ekki til frekara aðgerða í framtíðinni. Manchester United fékk tólf milljónir punda og Lyn fjórar. Síðan þá hefur Morgan Andersen, þáverandi yfirmaður knattspyrnumála hjá Lyn, verið sakfelldur í heimalandi sínu fyrir að falsa atvinnumannasamning Obi Mikel við Lyn. Það er vegna þess sem Chelsea hefur ákveðið að lögsækja Lyn. „Chelsea hefur skrifað Lyn til að gera þeim skýrt að í ljósi þess að félagið og Morgan Andersen komu fram á fölskum forsendum, eins og nú hefur verið sannað fyrir rétti, að áðurnefnt samkomulag eigi ekki lengur við," sagði í yfirlýsingu á heimasíðu Chelsea. Þar kemur einnig fram að forráðamenn félaganna hafa fundað um málið og að Chelsea hlakki til að vinna með Lyn á jákvæðum nótum til að leysa þetta mál. Þar er einnig tekið skýrt fram að lögsókn Chelsea beinist eingöngu gegn Lyn og Morgan Andersen.
Mest lesið „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Handbolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili Handbolti Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Íslenski boltinn Sú besta í heimi er ólétt Sport Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Körfubolti Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Enski boltinn Fleiri fréttir Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Sjá meira