Mourinho og Adriano vinir á ný Elvar Geir Magnússon skrifar 4. nóvember 2008 18:15 Adriano er sífellt til vandræða.
Vandræðagemlingurinn Adriano hefur náð sáttum við þjálfara sinn hjá Inter, Jose Mourinho. Þetta sagði Gilmar Rinaldi, umboðsmaður leikmannsins, í dag. Adriano hefur ekki verið í leikmannahópi Inter í síðustu tveimur leikjum vegna þess að hann mætti of seint á æfingu. Hann var að skemmta sér á diskóteki í Mílanó nóttina áður og svaf yfir sig. „Þeir eru búnir að sættast. Adriano mun koma sér aftur í form og verður til taks," sagði Rinaldi við ítalska fjölmiðla í dag. Mourinho sagði sjálfur í viðtali að hann væri ekki búinn að loka hurðinni á hinn 26 ára Adriano sem hefur mikið verið til vandræða utan vallar undanfarin ár. Sögusagnir hafa verið í gangi um að Adriano væri á barmi þess að yfirgefa Inter og halda á ný heim til Brasilíu. „Það er ekki möguleiki á því. Hann hefur aldrei talað um þetta við mig," sagði Rinaldi. Adriano var hjá Sao Paolo á lánssamningi síðasta tímabil en Rinaldi segir að efst í huga hans núna sé Inter og hann vilji fá nýjan samning hjá félaginu. „Við erum ekki búnir að ræða við Inter um nýjan samning en það er áætlað," sagði Rinaldi. Adriano hafði byrjað tímabilið vel undir stjórn Mourinho og skorað þrjú mörk í átta leikjum á Ítalíu.
Ítalski boltinn Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Fleiri fréttir Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Myndi taka kúlu fyrir Infantino Baleba færist nær United Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Arsenal-goðsögn að taka við Senegal Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Rodri genginn í raðir Barcelona Sjá meira