Leikir kvöldsins: FH vann upp þriggja marka forskot Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. ágúst 2008 16:30
Toppliðin tvö í Landsbankadeild karla gerðu bæði jafntefli í sínum leikjum í kvöld eftir að hafa lent undir. Valsmenn unnu hins vegar góðan sigur á Blikum og eru nú þremur stigum á eftir FH og fimm á eftir Keflavík. HK-ingar unnu í kvöld sinn annan sigur í röð en um leið aðeins þriðja sigurinn þeirra í allt sumar. Sigurinn í kvöld var gríðarlega dýrmætur þar sem liðið lagði ÍA í miklum botnslag, 2-1. Þar sem Þróttur og Fylkir gerðu markalaust jafntefli munar einungis fjórum stigum á HK, sem er með tólf stig, og Fylkismönnum. Þróttur er svo þremur stigum fyrir ofan Fylki. Útlitið er hins vegar orðið enn svartara fyrir Skagamenn sem eru á botni deildarinnar með átta stig, öðrum átta stigum á eftir Fylkismönnum. Það eru þó fimmtán stig eftir í pottinum og allt getur enn gerst. FH bjargaði stigi gegn Fjölni í Grafarvoginum eftir að hafa lent 3-0 undir. KR komst einnig yfir gegn Keflavík en þeir síðarnefndu skoruðu næstu tvö mörk í leiknum. KR náði hins vegar að jafna metin með marki Guðjóns Baldvinssonar í uppbótartíma. Þá vann Fram 2-0 sigur á Grindavík og kom sér þannig í fjórða sæti deildarinnar en liðið er með 28 stig, fjórum stigum á eftir Val. Hægt var að fylgjast með öllum leikjunum samtímis á Miðstöð Boltavaktarinnar. Slóðin á hana er visir.is/boltavakt. Það má lesa nánar um gang leikjanna í kvöld með því að smella á hvern einstakan leik. Úrslit kvöldsins:Fjölnir - FH 3-3 Grindavík - Fram 0-2 KR - Keflavík 2-2 Þróttur - Fylkir 0-0 ÍA - HK 1-2 Breiðablik - Valur 0-2
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Fleiri fréttir Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé Bríet Fjóla keypt til Þróttar Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Ari Leifsson í Stjörnuna Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjörið: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Bónorð strax eftir leik í Garðabæ „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Uppgjörið: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Uppgjörið: Stjarnan-Þór/KA 3-2 | Stjörnukonur aftur á sigurbraut Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Sjá meira