Íslenski boltinn

Gunnar Þór á leið í Val

Elvar Geir Magnússon skrifar
Gunnar Þór.
Gunnar Þór.

Bakvörðurinn Gunnar Þór Gunnarsson er á leið til Vals samkvæmt heimildum DV. Viðræður eru langt komnar og búist við því að gengið verði frá málum á næstu dögum.

Gunnar Þór er fæddur 1985 en hann samdi við Norrköping í Svíþjóð í lok síðasta ár. Þar á undan lék hann með Hammarby en hann er uppalinn hjá Fram.

Hann á 55 leiki fyrir meistaraflokk Fram í Íslandsmóti og bikarkeppni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×