Guðmundur ekki með Val í kvöld 19. maí 2008 12:18 Guðmundur Benediktsson
Íslandsmeistarar Vals verða án nokkurra lykilmanna í kvöld þegar þeir sækja Fylki heim í Landsbankadeildinni. Nýjasta nafnið á sjúkralista Valsmanna er framherjinn Guðmundur Benediktsson. Guðmundur er meiddur á ökkla og getur því ekki spilað með Val í kvöld. Hann staðfesti þetta í samtali við Vísi í hádeginu. "Ég er slæmur í ökklanum en það er ekki alveg á hreinu hvað það er. Ég er að bíða eftir því að fá að vita hvað þetta er en líklega eru það sködduð liðbönd. Þetta kemur líklega í ljós næstu daga," sagði Guðmundur. Valsmenn eru án þeirra Baldurs Aðalsteinssonar, Dennis Bo Martensen, Daníels Hjaltasonar og Barry Smith í kvöld og ljóst að þeirra bíður erfitt verkefni gegn Fylki. "Þetta verður mjög erfitt í Árbænum í kvöld. Þeir mæta grimmir til leiks og því verðum við að gera það líka," sagði Guðmundur, sem verður að sætta sig við að horfa frá hliðarlínunni. Fylkir hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í deildinni, gegn Fram og Keflavík, en Valsmenn réttu úr kútnum eftir tap fyrir Keflavík í fyrsta leik og unnu góðan sigur á Grindavík í annari umferð. Leikir kvöldsins í Landsbankadeild karla: 19:15 Fylkir - Valur 19.15 Þróttur - FH 19:15 HK - Keflavík 20:00 Grindavík - Fjölnir. Beint á Stöð 2 Sport.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira